Ískaldar töltdívur
Mikil stemning er fyrir Ísköldum töltdívum og sjáum við fram á frábært mót til styrktar Landsliði Íslands í hestaíþróttum. Glæsilegir aukavinningar verða í boði ásamt því að sigurvegari opins flokks hlýtur þátttökurétt á Allra sterkustu 26. mars næstkomandi. Einnig verður glæsilegasta parið valið.
Í ár verða keppnisgreinarnar eftirfarandi:
- T1 (Opinn flokkur)
- T3 (Meira vanar)
- T7 (Minna vanar)
- T3 (Ungmennaflokkur (18-21 árs))
Keppnin hefst með forkeppni, að henni lokinni verður skemmtiatriði í hléi og svo taka úrslitin við. Úrslitin hefjast kl. 20:00 Skráning er á http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add Skráningargjaldið er kr. 6.000. Takmarkaður fjöldi skráninga!
Allur ágóði af mótinu fer til styrktar landsliði Íslands í hestaíþróttum sem keppir á Norðurlandamótinu í Biri í Noregi í sumar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH