Ískappar berjast í Laugardal

  • 1. apríl 2011
  • Fréttir

Halldór Guðjónsson flaug heim frá Svíþjóð til að freista þess að verja titilinn frá í fyrra á Nátthrafni frá Dallandi.

Stjörnuskin á svellinu

Ístöltið „Þeir allra sterkustu“ fer fram á morgun, laugardaginn 2. apríl, í Skautahöllinni í Laugardal. Húsið opnar kl.19:15 og keppnin hefst stundvíslega kl.20:00. Á meðal keppenda eru frægir ískappar, bæði knapar og hestar. Fyrsta skal telja þá Halldór Guðjónsson á Nátthrafni frá Dallandi, sem sigraði keppnina í fyrra, og Eyjólf Þorsteinsson á Klerki frá Bjarnanesi, sem ætlar að sigra hana núna.

Auk þeirra má nefna Jakob Sigurðsson á Al frá Lundum, Íslandsmeistara í slaktaumatölti, Söru Ástþórsdóttur á Dívu frá Álfhólum og Heklu Katarínu Kristinsdóttur á Gautreki frá Torfastöðum. Bylgja valkyrja Gauksdóttir á Hersveini frá Lækjarbotnum er á sínum stað og Erla Guðný Gylfadóttir mætir í slaginn á Erpi frá Mið-Fossum. Og svo náttúrulega Diddi, Hinni, Elli Erlings, og öll hin. Ráslista má finna HÉR.

Forsala aðgöngumiða fer fram í verslun Líflands að Lynghálsi, Top Reiter í Ögurhvarfi, Ástund á Háaleitisbraut og Baldvin & Þorvaldi á Selfossi. Miðasala hefst kl.18:30 í Skautahöllinni á Laugardal. Tryggið ykkur miða í tíma! Miðaverð er kr. 3000.

Rétt er að geta þess að KÆNAN býður keppendum og sýnendum uppá kjötsúpu, KÖKUHORNIÐ býður uppá bakkelsi, MUSTAD býður uppá kaffi og ÖLGERÐIN býður uppá gos. Forsala miða er hafin í helstu hestavöruverslunum, einnig verða miðar seldir við innganginn og hefst miðasala kl.18:30 í anddyri Skautahallarinnar. Húsið opnar kl.19:15. 

Dagskrá:
20:00 Forkeppni
21:00 Stóðhestakynning – 2 holl stóðhestar
21:10 B-úrslit
21:30 Hlé
21:50 Stóðhestakynning  – 2 holl stóðhestar
22:00 A-úrslit
22:20 Happdrætti
22:30 Verðlaunaafhending

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link