Ískappleikar á Leirutjörn
Ískappleikar á Leirutjörn Akureyri verða haldnir á laugardaginn 22 febrúar (ef veður leyfir). Á tjörninni verða hryssu og stóðhestasýningar.
Keppt verður í tölti á beinni braut. Karlaflokkur – kvennaflokkur. Yngri en 18 ára. (3 inná í einu) og 150 metra skeið.
Töltkeppnin fer þannig fram að fyrst er forkeppni með 3 inná í einu og svo fara 5 efstu í hverjum flokki í úrslit.
Sýna skal: Hægt tölt eina umferð. Tölt með hraðamun eina umferð, og fegurðarístölt ein umferð.
2 dómarar dæma.
Skráningar í netfangið [email protected] fyrir kl 23.00 föstudaginn 21 febrúar. Skráningargjald kr 1000 hver skráning (í tölt og skeið.) greiðist á staðnum.
Stefnt er að því að hefja dagskrá kl 11.00 á Laugardaginn.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigfús Ólafur Helgason í sima 846-0768.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH