Íslandsmót
Íslandsmótin í hestaíþróttum verða haldin dagana 23. – 26. júlí 2014 á félagssvæði Fáks í Víðidalnum í Reykjavík. Að þessu sinni verða bæði mótin, þ.e. ÍM yngri flokka og fullorðinna, haldin samtímis á sama svæðinu en keppt á tveimur völlum.
Keppnisnefnd LH gefur á hverju ári út þær lágmarkseinkunnir sem par þarf að hafa náð til að skrá sig í keppnisgreinarnar á Íslandsmóti fullorðinna. Þetta eru sömu lágmörk og voru á sínum tíma sett til grundvallar þátttöku í meistaraflokki.
Sjá hér fyrir neðan:
- Tölt T1 6,5
- Fjórgangur V1 6,2
- Fimmgangur F1 6,0
- Tölt T2 6,2
- Gæðingaskeið PP1 6,5
- Fimi 6,0
- 250 m skeið 26 sek.
- 150 m skeið 17 sek.
- 100 m skeið 9 sek.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH