Landsamband hestamanna Íslandsmót auglýst til umsóknar á nýrri dagsetningu

  • 15. febrúar 2024
  • Fréttir
Íslandsmót fullorðinna og ungmenna verður haldið í júlí

Landssamband hestamannafélaga hefur ákveðið nýja dagsetningu fyrir Íslandsmót fullorðinna og ungmenna árið 2024 en mótið verður haldið dagana 25. til 28. júlí.

Eru áhugasamir mótshaldarar beðnir um að senda inn umsókn til LH fyrir 20. febrúar nk.

„Íslandsmót fullorðinna og ungmenna verður haldið 25. til 28. júlí.
Á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna skal keppt í einum styrkleikaflokki í hvorum flokki fyrir sig, keppt í greinum þar sem keppendur eru einir inni á vellinum í einu, en það eru V1, F1, T1, T2 ásamt skeiðgreinum, PP1, P1, P2 og P3. Auk þess er keppt í gæðingalist sem á liðnu ársþingi kom undir regluverk mótahalds LH. Þátttökurétt hafa pör sem á keppnisárinu hafa náð lágmarkseinkunn í hverri grein, og það er keppnisnefnd LH sem gefur út lágmörkin í febrúar,“ segir í tilkynningu frá Landssambandinu en þar kemur einnig fram að mótshöldurum sé heimilt að bjóða upp á fleiri greinar vilji þeir það en ekki verða krýndir Íslandsmeistarar í þeim greinum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link