Íslandsmót Íslandsmót barna og unglinga byrjar í dag

  • 12. júlí 2023
  • Fréttir
Keppt verður í forkeppni í fjórgangi V1 í unglingaflokki í dag.

Íslandsmót barna og unglinga fer fram á Gaddstaðaflötum á Hellu. Mótið byrjar í dag, miðvikudag, á fjórgangi í unglingaflokki. 60 knapar eru skráðir til leiks í þeim flokki og hefst keppni kl 15:00 og er áætlað að henni ljúki kl. 20:20.

Hægt er að skoða ráslista inn á LH Kappa smáforritinu. Afskráningar þurfa að berast til Sóleyjar með því að senda skilaboð í síma 867-7460 eða á [email protected]

Fyrir þá sem komast ekki á Hellu til að horfa á krakkana geta horft á mótið í opinni dagskrá inn á Alendis.is. Eins verður útsendingin aðgengileg á streymi í gegnum Facebook þannig að hún verður aðgengileg sem flestum.

Hér fyrir neðan er dagskrá mótsins

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link