Metár

Sýningarárið 2026 gekk afar vel og var um metár að ræða, hvort sem litið er til fjölda dóma eða gæða hrossanna. Alls voru felldir 1.699 dómar en fleiri dómar hafa ekki verið kveðnir upp á einu ári síðan árið 2012. Fleiri sýningar voru haldnar þetta árið eða 20 sýningar um landið samanborið við 16 sýningar í fyrra. Flestir dómar voru felldir á Gaddstaðaflötum eins og mörg undanfarin ár eða 785 dómar. Alls komu 1.266 hross til dóms frá 560 búum eða upprunum. Það er töluverð aukning í fjölda uppruna á síðustu árum og ánægjulegt að sjá hversu margir ræktendur eru að sýna sín hross og hafa metnað í sínu starfi. Hápunktur ársins var að sjálfsögðu Landsmót að Hólum í Hjaltadal. Alls voru dæmd á mótinu 175 hross í einstaklingssýningum og eftirtektarvert hvað hrossin stóðu sig almennt vel á mótinu og mörg hver blómstruðu.

Dómarar og knapar

Það voru 17 dómarar sem komu að dómum á Íslandi þetta árið sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár. Þeir dæmdu frá 199 upp í 731 sýningar en meðaltalið var 345 sýningar. Það er mikilvægt að fremur fámennur hópur dómara komi að dómstörfum árlega og fá nægilega þjálfun þannig að samræmi sé sem mest í dómstörfunum og náðist það ágætlega í ár.  Alls voru 199 knapar sem sýndu hross í kynbótadómi og 180 knapar sýndu hross í hæfileikadómi. 59 knapar sýndu fimm eða fleiri sýningar, 36 knapar sýndu 10 eða fleiri sýningar og 18 sýndu 20 eða fleiri sýningar. Það hefur verið árleg aukning í fjölda knapa sem sýna hross í kynbótadómi á Íslandi en það voru 156 knapar sem sýndu hross í reiðdómi í fyrra svo dæmi sé tekið. Þetta er því töluverður hópur knapa sem sýna kynbótahross á Íslandi þessi misserin og árlega mæta öflugir ungir knapar til leiks sem er afar verðmætt fyrir ræktunarstarfið.

Í töflunum hér fyrir neðan má sjá meðaltöl og breytileika í einkunnagjöf allra eiginleika í sköpulagi og hæfileikum á Íslandi á árinu:

Meðaltöl eiginleikanna sem dæmdir eru i kynbótadómi eru heldur hærri í ár samanborið við síðasta ár en breytileiki í einkunnagjöf er afar svipaður sem segir að notkun skalans er ekki að dragast saman. Skalinn var aðeins meira að segja aðeins betur notaður á þessu ári ef litið er til hæstu og lægstu einkunna. Meðalaldur sýndra hrossa í ár var 5,90 ár sem er aðeins lægri meðalaldur samanborið við árið í fyrra (5,97 ár). Þetta skýrist af því að heldur fleiri fjögurra og fimm vetra hross eru sýnd á Landsmótsárum og er því meðalaldur yfirleitt alltaf aðeins lægri þá. Í meðfylgjandi töflu er fjöldi hrossa sem kom til dóms í hverjum aldurs- og kynflokki:

  Stóðhestar Hryssur
4 vetra 96 97
5 vetra  164 222
6 vetra 105 243
7 vetra og eldri 73 265

Klárhross voru 32% sýndra hrossa í ár en það er heldur lægra hlutfall samanborið við árið í fyrra en þá var hlutfall klárhrossa 34%. Þetta hlutfall hefur farið hækkandi á síðastliðnum árum en lengi vel var þetta um fjórðungur sýndra hrossa sem voru klárhross. Aðal skýringin er líklega sú að fleiri ákveða að sýna ekki skeið í hrossum sem hafa takmarkaða skeiðgetu enda hefur einkunnum 5,5 til 6,5 farið heldur fækkandi undanfarin ár. Þó hlutfall klárhrossa fari hækkandi er staða skeiðsins sterk um þessar mundir en meðaltal skeiðs fer hækkandi eins og annarra eiginleika. Afar mörg flugvökur hross voru sýnd á árinu og 258 hross fóru í 8,5 eða hærra fyrir skeið eða 23% sýndra hrossa og hefur þetta hlutfall aldrei verið hærra. Þá voru 116 hross sem fengu 9,0 eða hærra í einkunn fyrir skeið.

293 feður voru á bak við sýnd hross í ár og í meðfylgjandi töflu er yfirlit yfir þá stóðhesta sem skiluðu sex eða fleiri hrossum til dóms:

Stóðhestur Fjöldi
Skýr frá Skálakoti 73
Þráinn frá Flagbjarnarholti 67
Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum 49
Kveikur frá Stangarlæk 1 49
Draupnir frá Stuðlum 33
Adrían frá Garðshorni á Þelamörk 31
Hrannar frá Flugumýri II 29
Viðar frá Skör 27
Blakkur frá Þykkvabæ I 23
Pensill frá Hvolsvelli 19
Spuni frá Vesturkoti 18
Safír frá Mosfellsbæ 18
Hannibal frá Þúfum 17
Óskasteinn frá Íbishóli 16
Skaginn frá Skipaskaga 16
Ísak frá Þjórsárbakka 16
Eldjárn frá Skipaskaga 15
Veigar frá Skipaskaga 15
Ljósvaki frá Valstrýtu 13
Glúmur frá Dallandi 12
Apollo frá Haukholtum 12
Kjuði frá Dýrfinnustöðum 12
Skarpur frá Kýrholti 12
Trymbill frá Stóra-Ási 11
Dagfari frá Álfhólum 11
Sólon frá Þúfum 11
Útherji frá Blesastöðum 1A 11
Leynir frá Garðshorni á Þelamörk 11
Loki frá Selfossi 10
Forkur frá Breiðabólsstað 10
Gaumur frá Auðsholtshjáleigu 9
Kiljan frá Steinnesi 9
Hringur frá Gunnarsstöðum 9
Organisti frá Horni 9
Rauðskeggur frá Kjarnholtum I 9
Sigur frá Stóra-Vatnsskarði 9
Styrkur frá Leysingjastöðum II 9
Stáli frá Kjarri 8
Knár frá Ytra-Vallholti 8
Sjóður frá Kirkjubæ 8
Jarl frá Árbæjarhjáleigu II 8
Hreyfill frá Vorsabæ II 8
Þór frá Stóra-Hofi 8
Ómur frá Kvistum 7
Hákon frá Ragnheiðarstöðum 7
Arion frá Eystra-Fróðholti 7
Vökull frá Efri-Brú 7
Dofri frá Sauðárkróki 7
Fenrir frá Feti 7
Ölnir frá Akranesi 6
Brimnir frá Efri-Fitjum 6
Lexus frá Vatnsleysu 6
Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum 6
Vákur frá Vatnsenda 6
Konsert frá Hofi 6
Herkúles frá Ragnheiðarstöðum 6
Sægrímur frá Bergi 6
Þór frá Torfunesi 6
Spaði frá Stuðlum 6
Gljátoppur frá Miðhrauni 6
Atli frá Efri-Fitjum 6

 

Nýtt fyrirkomulag með sköpulagsdóma

Ný regla tók gildi í ár með sköpulagsdóma. Hross sem komu til dóms fjögurra og fimm vetra þurftu að koma til sköpulagsdóms áður en þau gátu komið í reiðdóm eins og verið hefur. Fyrir hross sem höfðu hlotið dóm á sköpulaginu fimm vetra gömul var sköpulagsdómur aftur á móti valkvæður. Alls voru reiðdómarnir á árinu 313 (fyrir utan Landsmót) og ljóst að þetta nýja fyrirkomulag var töluvert nýtt strax á fyrsta ári. Hlutfall reiðdóma af öllum dómum á hverri sýningu var á bilinu 5 til 52%, reiðdómum fjölgaði hlutfallslega er leið á árið en meðaltalið var um 22% á öllum sýningum. Ef fram heldur sem horfir mun þetta hafa áhrif á skipulag sýningarhaldsins til framtíðar, við munum til dæmis geta nýtt sýningarvikurnar betur og dæmt fleiri hross á viku.

Tíur ársins

Hestakosturinn sem sýndur var á árinu var hreint magnaður og alls fóru ellefu hross yfir 9.00 fyrir hæfileika sem er algjört met. Gaman er að rifja upp þau hross sem fengu 10 fyrir einstaka eiginleika á árinu. Fyrstan er að telja Tinna frá Árdal, undan Kveik frá Stangarlæk 1 og Þrumu frá Árdal en hann braut blað í íslenskri hrossarækt með því að vera fyrsta hrossið í sögunni til að hljóta 10 fyrir háls, herðar og bóga; einstaklega glæsilegur hestur og alhliða gæðingur í þokkabót. Þrettán hross fengu 10 fyrir prúðleika. Þá hlutu hvorki meira né minna en sex hross 10 fyrir tölt á árinu en aldrei hafa svo mörg hlotið 10 fyrir tölt á einu ári. Það hafa komið ár sem allt að 6 hross hafa fengið 10 fyrir skeið til dæmis og það ætti ekki að koma á óvart að það komi að ári þar sem nokkur hross fái 10 fyrir tölt en langhæst vægi hefur verið á þeim eiginleika í yfir 20 ár. Fyrsta er að telja Nótt frá Tjaldhólum en hún er undan Skarpi frá Kýrholti og Sýn frá Árnagerði. Nótt hlaut 9,5 fyrir tölt fyrir tveimur árum þá fjögurra vetra gömul og er einstaklega mjúk, léttstíg og flink á tölt og minnir um margt á ömmu sína, Skruggu Rökkvadóttur frá Kýrholti sem var orkumikil og sporlétt. Hrammur frá Brautarholti hlaut 10 fyrir tölt og er undan Veigari frá Skipaskaga og Örðu frá Brautarholti, Svein-Hervarsdóttur. Hrammur er afar skrefmikill, skrokkmjúkur hestur með háar og fallegar hreyfingar. Þá hlaut Sparta frá Eystra-Fróðholti 10 fyrir tölt, undan Rauðskeggi frá Kjarnholtum I og gæðingarmóðurinni Spá frá Eystra-Fróðholti. Sparta er einstaklega flink og fjaðurmögnuð á tölti en hún hlaut einnig 10 fyrir hægt tölt, alltaf há að framan og mjúk. Aspar frá Hjarðatúni hlaut 10 fyrir tölt á vorsýningu og stóð við það eftirminnilega á Landsmóti; einstakur styrkur í þeim hesti á tölti á öllum hraðastigum en hann hlaut einnig 10 fyrir hægt tölt. Aspar er undan Boða frá Breiðholti í Garðabæ og Hrund frá Ragnheiðarstöðum. Baldvin frá Margrétarhofi hlaut 10 fyrir tölt á Landsmóti, undan Kveik frá Stangarlæk 1 og Glettu frá Margrétarhofi, Rökkvadóttur. Baldvin býr yfir einstöku fjaðurmagni og mýkt og er afar sjálfberandi á tölti. Röðull frá Haukagili í Hvítársíðu hlaut 10 fyrir tölt en hann er undan Arion frá Eystra-Fróðholti og Sunnu frá Steinnesi, heiðursverðlaunahryssu og er hún ekki síst að skila frá sér gæðatölti. Röðull býr yfir mikilli mýkt og burði, hefur verið að eflast ár frá ári og ræður nú einstaklega vel við sig á tölti en hann hlaut einnig 10 fyrir hægt tölt. Þá hlaut Seytla frá Íbishóli 10 fyrir hægt tölt en hún er undan Óskasteini frá sama bæ og Seylu frá Efra-Langholti sem var undan Miska frá Miðdal. Seytla á einstaklega auðvelt með að hringa sig upp á hægu og ganga í jafnvægi, fjaðurmögnuð og mjúk. Tveir hestar hlutu 10 fyrir brokk, þeir Miðill frá Hrafnagili og Aspar frá Hjarðartúni. Miðill er undan Auði frá Lundum og Gígju frá Búlandi, Hrymsdóttur og er stórmagnaður klárhestur með virkjamikla framgöngu. Tvö hross hlutu 10 fyrir skeið á árinu; þau Svartur frá Vöðlum og Ramóna frá Heljardal. Svartur er undan Kveik frá Stangarlæk 1 og Nótt frá Oddsstöðum en það var flugvökur hryssa og hlaut 9,5 fyrir skeið á sínum tíma. Ramóna er undan Draupni frá Stuðlum og Auði frá Hofi, Hróðursdóttur. Tvö hross hlutu 10 fyrir greitt stökk. Það gerði fyrrgreindur Aspar frá Hjarðartúni, enda stórmagnaður hestur. Móna frá Þúfum er hitt hrossið, undan Blundi frá Þúfum og Myrkvu frá Torfunesi; kattmjúk og sprúðlandi af teygju og tápi á greiðu stökki. Sjö hross hlutu 10 fyrir samstarfsvilja á árinu. Sparta frá Eystra-Fróðholti hlaut 10 fyrir samstarfsvilja enda afar taumlétt, viljug og jákvæð. Hugsýn frá Ketilsstöðum hlaut einnig 10 fyrir þennan eiginleika, einstakt geðprýðis- og viljahross undan Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum og Hugrökk frá Ketilsstöðum. Brynja frá Nýjabæ hlaut 10 fyrir samstarfsvilja og er hún undan Gljátoppi frá Miðhrauni og Gunnvöru frá Bæ 2, Aðalsdóttur Nýjabæjar. Brynja er viljug og samstarfsfús og gæðingur á gangi. Þá hlutu þau fyrrgreind Miðill frá Hrafnagili, Röðull frá Haukagili á Hvítársíðu, Seytla frá Íbishóli og Nótt frá Tjaldhólum einnig 10 fyrir samstarfsvilja og eiga það sameiginlegt að vera þjál og orkumikil gæðingshross. Dögg frá Kvistum hlaut 10 fyrir hægt stökk, undan hinum einstaka kynbótahesti Kveik frá Stangarlæk 1 sem á fjögur hross í þessari upptalningu sem er hreint magnað. Dögg hlaut einnig 10 fyrir hægt stökk í fyrra og er afbrigði á þessari gangtegund; eins og gormur á leið upp í himinhvolfið. Þá hlaut Álfadís frá Höskuldsstöðum 10 fyrir fet en hún er undan Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum og Grósku frá Garðshorni á Þelamörk. Álfadís er afar mjúk og skrefmikil á feti með sterka yfirlínu en faðir hennar er að gefa afar jafnvíg gæða ganghross og einmitt mjög gott fet.

Heilbrigðisskoðanir kynbótahrossa.

Heilbrigði kynbótahrossa var skoðað eins og undanfarin ár, bæði fyrir og eftir dóm. Allir áverkar sem hrossin hlutu í dómi voru stigaðir í þrjá flokka og átti þetta við bæði særindi í munni og ágrip á fótum. Fyrsta stigs athugasemdir teljast ekki vera eiginlegir áverkar en eru t.d. særindi í munni sem ná ekki í gegnum slímhúð eða strokur á fótum sem ná ekki í gegnum húð og eru án eymsla eða bólgu. Annars stigs athugasemdir eru áverkar, s.s. lítil sár í munni eða á ágrip á fótum sem ná þó ekki einum cm. Þriðja stigs athugasemdir eru alvarlegir áverkar og á þá lund að hrossið hlýtur ekki reiðdóm og getur ekki mætt til yfirlitssýningar. Skráð voru ágrip á fótum í 14,6% tilfella sem er aðeins hærra en var í fyrra en þá var tíðni ágripa 13% og er þetta fyrsta árið í mörg ár sem tíðni áverka fer ekki lækkandi. Megnið af þessum athugasemdum eða 67% voru í flokki 1, tíðni eiginlegra áverka á fótum (flokkar 2 og 3) var því 4,4% (var 4% í fyrra) þar sem áverkar af þriðja stigi voru tiltölulega fáir (6 hross). Þá voru skráð særindi eða blóð í munni í 4% tilfella og er það einnig aukning frá því í fyrra en þá voru skráð særindi í munni í 3% tilfella. Í lang flestum tilfellum var um 1. stigs særindi að ræða en af 65 tilfellum var um eitt tilfelli að ræða af öðru stigi og eitt tilfelli af þriðja stigs áverka sem olli því að hrossið hlaut ekki dóm. Það má því segja að staðan á þessum málum sé ásættanleg þar sem tíðni eiginlegra áverka er frekar lág. Hækkun á tilfellum áverka er þó umhugsunarefni og spurning hvort þurfi að taka þetta málefni á dagskrá með einhverjum hætti aftur. Það er reynt að taka á grófri reiðmennsku á hverju ári en það var einn knapi sem hlaut áminningu fyrir grófa reiðmennsku á árinu

Eistnaskoðun stóðhesta

Eistnaskoðun var framkvæmd á öllum stóðhestum sem komu til dóms þar sem mæld er stærð eistnanna, stinnleiki þeirra metin og kannað með frávik svo sem snúninga. Þéttleiki eistna er metinn í þremur flokkum þar sem flokkur I var þétt og eðlilegt, II aðeins lin og flokkur III afar lin og veldur rauðu T-i í WorldFeng. Mikill meiri hluti stóðhestanna er með þétt og eðlileg eistu eða tæplega 90% hestanna. Þá var restin af hestunum með stinnleika II og einn hestur með stinnleika III. Merkt var við eistnagalla hjá 10 stóðhestum á árinu, samanborið við þrjá hesta í fyrra og sex hesta árið 2024 (sjö stóðhestar árið 2018 og 13 hestar árið 2016). Um of mikla smæð var að ræða (heildarbreidd beggja eistna undir 8.0 cm) í fimm tilfellum og misstór eistu að ræða í einu tilfelli. Fjórir hestur voru eineistungar. Ef meðaltal á heildarbreidd eistna er skoðað, þá kemur í ljós að það er 10,22 cm ár, var 10,03 cm í fyrra og staðalfrávikið er um 1,2 cm. Þessar stærðir hafa ekki breyst neitt að ráði í 20 ár, þróunin er heldur á uppleið og því ljóst að eistu íslenskra stóðhesta eru ekki að minnka að meðaltali sem er vel.

Starfsfólk og staðarhaldarar

Að lokum vil ég færa öllu starfsfólki kynbótasýninganna í ár mínar bestu þakkir fyrir vel unnin störf. Að stórum hluta er um að ræða sama góða hópinn ár eftir ár og hefur myndast góð reynsla innan hans, hvort sem um er að ræða dómara, sýningarstjóra eða ritara. Ég vil jafnframt þakka staðarhöldurum á öllum sýningarstöðunum fyrir gott samstarf. Verkefninu hefur alls staðar verið tekið af áhuga og metnaði og lögð áhersla á að skapa sem bestar aðstæður og tryggja að allir þættir sýninganna gangi sem best. Síðast en ekki síst vil ég þakka sýnendum, ræktendum og eigendum hrossanna fyrir ánægjuleg samskipti og gott samstarf á árinu.

Höfundur: Þorvaldur Kristjánsson

Tinni frá Árdal varð fyrsta hrossið í sögunni til að hljóta 10 fyrir háls, herðar og bóga; fegurðar- og útgeislunardjásn.

Hæsti hringvöllur í heimi

Nýr hringvöllur var tekinn í notkun á Tamangur hestamiðstöðinni í Colorado ríki í Bandaríkjunum á dögunum. Árlegt mót staðarins fór einnig fram og var þátttaka góð og mikil ánægja með byggingu vallarins sem bætir mjög möguleika til þjálfunar og keppni á svæðinu. Völlurinn stendur í 2300 metra hæð, sem er hærra en hæsti tindur á Íslandi, Hvannadalshnjúkur, sem er rúmlega 2100 metrar að hæð. Samkvæmt óvísindalegri könnun Eiðfaxa er þetta því líklegast sá hringvöllur sem stendur hæst í heiminum.

Nýi völlurinn á Tamangur. 

Mikil uppbygging hefur átt sér stað á Tamangur og samfélag eigenda íslenskra hesta í Colorado hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin ár. Svæðið hentar vel til að halda íslenska hesta, víðsýnt, gott landrými og fjölbreytt landslag og má reikna með því að íslenskum hestum fjölgi enn frekar á þessum slóðum, en sögu þeirra í Colorado má rekja a.m.k. aftur til ársins 1885 þegar Jesse nokkur Harris flutti þangað 18 íslenska hesta. Þorgeir Guðlaugsson hefur rannsakað sögu íslenska hestsins í ríkinu og komist að því að hestakynið naut vinsælda og vakti athygli um langt skeið, en um 1930 hurfu þeir af sjónarsviðinu í nokkra áratugi, en áttu síðar eftir að eiga sterka endurkomu.

Ásta Dögg Bjarnadóttir-Covert vann bæði tölt og fjórgang. 

TIFE mótið gekk vel á Tamangur og var mikil ánægja með framtakið. Lengst að kom Ásta Dögg Bjarnadóttir-Covert ásamt fjölskyldu sinni, alla leið frá Californiu, og hún og hestur hennar Gígur frá Ketilsstöðum unnu bæði tölt og fjórgang í opnum flokki. Öll nánari úrslit af mótinu má nálgast í IceTest appinu.

Næst á dagskrá í mótahaldi í Bandaríkjunum er fyrsta Ameríkumótið í hestaíþróttum sem fram fer á Harmony Icelandics búgarðinum í Iowa um næstu helgi. Um WR mót er að ræða og koma þátttakendur um langan veg, sumir aka jafnvel í nokkra daga.

Jeff Rose og Coralie Denmeade eru eigendur Tamangur ásamt fleirum. Hér eru þau ásamt Laura Benson sem var með námskeið í aðdraganda mótsins.

 

Unga kynslóðin stóð sig vel á mótinu. 

Tilraun um gæðinginn

Það er ekkert áhlaupaverk að skilgreina orðið gæðingur, svo öllum líki. Hvað þá að búa svo um hnútana að skilgreiningin standist fræðilegar kröfur. Þetta helgast af því að gæðingur er gildishlaðið orð, sem ofan í kaupið vísar í allar áttir í upplifun og hughrifum þeirra sem gæðingskosta njóta. Ljóð og sögur eru því ef til vill heppilegri og að minnsta kosti algengari máti heldur en þurrar og fræðilegar skilgreiningar, þegar til kastanna kemur að orða það sem innra býr – og varðar þetta viðfangsefni.
Í stað þess að gefast strax upp á verkefninu, set hér að gamni tvo gamla húsganga, sem mér hafa verið tungutamir frá barnæsku.

Ég held´ann ríða úr hlaðinu best
sem harmar engir svæfa.
Hamingjan fylgir honum á hest
heldur í tauminn gæfa. J.A.

Vekur styrk og veitir frið
vonir rætast mínar
gegnum taum að tala við
tilfinningar þínar. Þ.G.

Horfnir góðhestar

Samspil manns og hests vekur hughrif sem speglast gjarnan í snjöllum hestavísum hagyrðinga og ljóðum þjóðskálda. Höfundar þessara ofanrituðu vísna eru Jón Arason Hólabiskup og Þorsteinn Guðmundsson, bóndi á Skálpastöðum í Lundarreykjadal. Of langt mál yrði að vitna að ráði í stórskáld á borð við Pál Ólafsson, Stefán í Vallanesi, Einar Benediktsson, Guðmund Böðvarsson og Jóhannes úr Kötlum, svo aðeins fáir séu nefndir, og minni spámenn látnir liggja milli hluta. Allir þessir hafa ort meitluð og hrífandi kvæði um hesta.
Fyrri skilningur og álit margra eldri hestamanna var sá, að aðeins alhliða gengir og ganghreinir eðlisgæðingar verðskulduðu nafnbótina gæðingur. Þeir urðu sumsé að hafa getu til að geta skeiðað með tilþrifum, í viðbót við aðra sjálfsagða kosti. Til marks um þetta er gamla fyrirkomulagið: Annars vegar gæðingakeppni hinna fjölhæfu alhliða hesta, og hins vegar góðhestakeppni ,,klárhesta með tölti”. Þetta sjónarmið var ríkjandi lengst af á 20. öldinni. Að því kom að þessir flokkar voru nefndir A-flokkur og B-flokkur gæðinga, og trúlegt er að það sé tilkomið vegna þess að almenn sátt ríki nú um að þessar hestgerðir geti báðar verðskuldað sæmdarheitið gæðingur. Út frá því verður gengið í þessari umfjöllun.

Lærdómur frá upplýsingaöld

Í Klausturpóstinum frá árinu 1825 birtist grein eftir Magnús Stephensen landhöfðingja. Greinin er á margan hátt stórmerk og hægt er að draga lærdóm af henni – lærdóm sem greinir íslenska gæðinginn skilmerkilega frá öðrum hestakynjum. Á því er ekki vanþörf nú um stundir, þegar alls kyns ruglandi og grautarhugsun veður uppi – t.d. í heitum og afmörkun keppnisgreina, jafnt hér heima á Íslandi og úti í hinum stóra heimi.

Í grein þessari segir Magnús að ,,þýðgangur” íslenskra gæðinga greini þá á afgerandi hátt frá útlenskum hestakynjum, enda sé þeir ,,ómissandi á misjöfnum klungurvegum, einstigum um fjöll og hraun……………eru því hesta hentugastir í þessu harða og illa vegaða landi……..”
Og jafnframt: ,, …………… en oss léttast reiðir og bætist hinna jöfnuður (þ.e. samanburður við útlendu hestana sem hafa glæstara útlit) með góðhesta vorra þýða og lipra gangi”.

Í mínum huga leikur enginn vafi á því að ,,þýðgangur” og ,,þýður og lipur gangur” hljóti að vera tölt. Á þessum tíma er nefnilega ekki búið að finna upp orðið tölt, sem allur þorri hestamanna er nú sammála um að sé höfuðprýði íslenska gæðingsins.
Að þessu sögðu er ekki undan vikist að beina sjónum að verkefninu sem sett var fyrir.

Mýktartölt er meginkostur

Furðu vel gekk að ná saman um þá meginþætti, sem greina gæðing frá bykkju, svo notað sé orðalag Magnúsar landshöfðingja Stephensen. Eða, með öllu mildara orðalagi, hvaða eliskosti gæðingur þurfi að hafa til að bera, til að standa undir nafni. Við nefndarmenn vorum einhuga um að þessir þættir væru:
Traust lund – Mýktartölt – Fjölhæfni – Hreinn gangur – Snerpa – Flýtir.

Nokkrar umræður urðu um hvern skilning bæri að leggja í þriðja liðinn, fjölhæfni. Virtist nefndarfólk helst á því að ekki bæri að leggja strangasta skilning í hugtakið, þ.e. að fyrr mætti vera fjölhæfur en að búa yfir öllum fimm gangtegundunum, eins og alhliða hestar gera. Þannig yrði gerður nægilegur greinarmunur á orðunum alhliða og fjölhæfur, til þess að ætla megi að um þetta orðalag gæti orðið almenn sátt, fyrst hjá fulltrúum hestamannafélaganna á Landsþingi L.H. – og í framhaldinu hjá flestum hestamönnum.

Það kann að vera bjartsýni að halda að sú skilgreining sem kemur útúr þessari vinnu, gildi um aldur og ævi. Hins er þó að gæta, að hér hefur mögulega tekist að finna rauðan þráð um mýktargang og skaphöfn, sem dugar best þegar mest á reynir – hvort sem er á klungurvegum eða kjörbrautum. Rauðan þráð sem liggur allt aftur í aldir, og vísar jafnframt veginn til framtíðar!

Utan dagskrár

Fjörlegar umræður urðu í nefndinni utan dagskrár, annars vegar um gæðingaskeið og hins vegar um fyrirkomuleg töltdóma á kynbótasviðinu. Umræðurnar spunnust út frá viðfangsefninu, hugtökunum gæðingur og mýktargangur – og nauðsyn þess að halda til haga upphaflegum markmiðum þeirra ,,nýjunga” sem gæðingaskeið og hægatölt eru í keppnisflórunni. Fram komu sjónarmið sem ég sé fulla ástæðu til að hefja til vegs:
Í fyrsta lagi: Að brýna nauðsyn beri til þess að endurvekja það eina sanna gæðingaskeið, sem í fyrstu var lagt upp með: Að hefja það á tölti og ljúka því á tölti. Og fyrir alla muni: Að snarhætta að klossbremsa í lok spretts. Aðeins þannig getur keppnisgreinin staðið undir nafni, og orðið í anda þeirra forkólfa og hugmyndasmiða sem lögðu línurnar í upphafi.

Í öðru lagi: Að kominn sé tími til að í kynbótadómi fái sérstakt vægi einkunnin fyrir hægt tölt, fremur en að tengja einkunnagjöfina við tölteinkunnina með þröskuldum, eins og nú tíðkast. Aðeins þannig næst fram gegnsæi og fullur skilningur á einkunnagjöfinni.
Væri ekki verðugt að keppnis- og kynbótanefndir Landsþingsins fjalli og álykti um þessi síðastnefndu mál? Og í framhaldinu Fagráð í hrossarækt? Orð eru til alls fyrst.

Að lokum er rétt að leggja áherslu á að þessi skrif eru mín. Hér er alls ekki verið að tala fyrir nefndina. Hún mun skila sinni niðurstöðu, og leggja fyrir landsþingið.

Bjarni Þorkelsson

Lalli Sigmunds á mannlegum nótum í kvöld

Næsti gestur þáttarins ,,Á mannlegum nótum“ er hestamaðurinn Lárus Sigmundsson.
Lárus fer yfir feril sinn í hestamennskunni, m.a. ferðalag á Evrópumót 1983 fyrir Íslands hönd sem áhugamaður.
Fjölbreytt og áhugavert spall við kappa sem hefur víða komið við.

Umsjónarmaður og spyrill er Hrafnkell Guðnason.

Þátturinn er aðgengilegur kl 20:00 á EiðfaxaTV.

Ævintýri á hestbaki frumsýnd á RIFF

Heimildamyndin Ævintýri á hestbaki (e. Ride of a Livetime) verður frumsýnd á RIFF (Reykjavík International Film Festival) sunnudaginn 27. september kl . 11 í sal 2 í Háskólabíói.

Myndinn fjallar um hestakonuna Þórgunni Þórarinsdóttur og fjölskyldu hennar og keppnishest hennar Djarf frá Flatatungu. Fylgst með Þórgunni frá því að hún er 15 ára hestastelpa á Sauðárkróki þar til hún keppir fimm árum síðar til úrslita í fimmgangi ungmenna á Heimsleikum íslenska hestsins í Sviss sumarið 2025.

Myndin verður síðan áfram á dagskrá RIFF þar til hátíðinni lýkur.  Árni Gunnarsson, kvikmyndagerðarmaður leikstýrir og framleiðir myndina auk hans komu fjöldi fagfólks að gerð myndarinnar.

Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári

Á mótinu verður keppt í A- og B-flokki (flokki I og II), barna- , unglinga- og ungmennaflokki, tölti (T1 og T3) þar T3 er ætlað minna vönum og einnig verður keppt í kappreiðum (stökk og skeið).

„Töltgreinar og kappreiðar verða opnar á landsvísu en gæðingakeppni er eingöngu fyrir aðildarfélög mótsins en hestamannafélögum frá og með Árnessýslu norður í Eyjafjarðarsýslu er boðið að taka þátt í mótinu og má hvert félag senda ótakmarkaðan fjölda fulltrúa í gæðingakeppni I og II,“ segir í tilkynningu frá mótshöldurum.

Haldin verður kynbótasýning þar sem verður boðið upp á bæði hefðbundna braut og grasbraut sem er ein sinnar tegundar.

„Félagssvæði mótsins verður stækkað að þessu sinni en með því vilja mótshaldarar stuðla að aukinni þátttöku áhugamanna, barna og unglinga og eins fá úrval bestu gæðinga og kynbótahrossa til að taka þátt í mótinu. Frábær aðstaða er á svæðinu þar sem boðið verður upp á stíur í félagshúsi auk girðinga fyrir hross.“

Stutt er í næstu hótelgistingu en einnig verður boðið upp á tjaldstæði við félagsheimilið Mánagarð sem er einungis í eins kílómeters fjarlægð þar sem salernis- og sturtuaðstaða er til staðar.

„Einnig er stutt í næstu tjaldstæði með aðgengi að rafmagni, að Myllulæk (6 km) í frábæru umhverfi eða á Höfn (8 km). Á Höfn er að finna alla helstu þjónustu, svo sem eldsneytisstöðvar, hleðslustöðvar, sundlaug og verslun svo eitthvað sé nefnt. Fyrir hönd Hestamannafélagsins Hornfirðings vonumst við til þess að sem flestir geri sér leið austur í Hornafjörð og geri mótið að ógleymanlegri minningu með okkur.“

Kynbótamat hrossa haustið 2026

Nú hefur nýtt kynbótamat verið vistað í WorldFeng en öllum kynbótasýningum lauk í fyrstu viku september. Vorið 2025 var ákveðið að byggja kynbótamatið bæði á kynbótadómum hrossa og einnig á keppnisárangri í ákveðnum keppnisgreinum.

Hér er um að ræða töltgreinar (T1, T3, T2 og T4), fjórgangsgreinar (V1, V2 og B-flokki), fimmgangsgreinar (F1, F2 og A- flokki) og skeiðgreinar (250 metra skeiði, 100 metra skeiði og gæðingaskeiði).
Keppnisárangur hrossa á alþjóðlegum mótum (e. World ranking) í fullorðinsflokki (meistaraflokki og 1.flokki), stórmótum í gæðingakeppni auk skeiðgreina er nýttur.

Alls voru felldir 2.488 kynbótadómar í ár í átta löndum og þá bættust við um 16.000 keppnisdómar í ár.
Þau gögn sem kynbótamatið byggir á eru því rúmlega 40 þúsund kynbótadómar og keppnisgögnin telja rúmlega 200 þúsund dóma. Það er því ljóst að grunnur kynbótamatsins er afar öflugur.

Valparanaforritið verður einnig uppfært fljótlega. Það er afar magnað verkfæri sem ræktendur hafa til að hjálpa sér að velja stóðhesta á sínar hryssur. Þar er til dæmis hægt að fylgjast með skyldleika væntanlegra foreldra og passa að afkvæmið verði ekki of skyldleikaræktað. Það gefur manni einnig kynbótamatsspá fyrir væntanlegt afkvæmi og líkur á öllum mögulegum litum.

Þetta er því afar verðmætt og skemmtilegt verkfæri sem vert er fyrir alla ræktendur að kynna sér.

Um dómaramál – hugrenningar að afloknu keppnistímabili

Það birtust á dögunum fréttir af því að VAR-dómarar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta hefðu verið settir í skammarkrók og fengju ekki að dæma meir um sinn, vegna mistaka sem þeir gerðu við myndbandsdómgæsluna. Þetta atvik og fréttaflutningur af því, hefur hvatt mig til þess að tjá mig aðeins um dómaramál í hestamennsku, bæði almennt og af persónulegum ástæðum.

Það er óumdeilt að dómarar eru alltaf undir smásjá – jafnvel í skotlínu. Þetta á við um alla dómara hvort sem þeir starfa við dómstóla eða íþróttakappleiki, hestaíþróttir, gæðingakeppni eða kynbótadóma. Síðastnefndu greinarnar hafa órofa tengsl við mitt lifibrauð og lífshagsmuni, og fyrir kemur að úrslit í nefndum greinum ráðast af ákvörðunum dómara. Það er því mikið undir því komið að dómarar séu sanngjarnir og réttsýnir, auk þess að vera faglega sterkir og vel undirbúnir.

Hlutverk dómara, hægt tölt og gangrými

Og talandi um ábyrgð, fagmennsku og hlutverk dómara: Hægt tölt er grein sem allir hestadómarar þurfa að glíma við í sínum störfum. Nýleg blaðagrein sem gerir hæga töltið að umfjöllunarefni, hefur vakið athygli og viðbrögð, sem eru umfram verðskuldun. Einfaldlega vegna þess að málið er ekki svo flókið: Á augabragði geta dómararnir lagað það, sem úrskeiðis hefur farið, hætti þeir að gefa fyrir hægt tölt ef það er riðið of hratt!

Rými á gangtegundum er hugtak sem aldrei má vanmeta í kynbótadómum, og gildir jafnt um tölt og brokk og skeið og stökk. Hefur verið nægilega gætt að því? Er hugsanlegt að of mikil áhersla hafi verið lögð á hægu gangtegundirnar, á þeim forsendum að það auðveldi dómurum að meta samstarfsvilja, ef löturhægt er riðið? Þá hugmynd tel ég reyndar alveg úr lausu lofti gripna. Mín reynsla er nefnilega sú, að það sé vel hægt að kenna geðstirðum og / eða viljadaufum hrossum að ganga hægagang, og villa þar með fyrir dómurum, sem leggja traust sitt á þessa matsaðferð.

Það hefur of oft orðið misbrestur á fagmennsku í dómgæslu, sem rýrt hefur traustið, sem ríkja þarf. Alloft hendir það að einn dómari er alveg úr takti við alla hina. Sjálfur hef ég þurft að þola það þrívegis í úrslitum í gæðingakeppni á landsmóti (2006, 2016 og 2022), að einn dómari (af fimm) var alveg út úr korti og setti keppnishest minn í mun lægra sæti en allir hinir dómararnir, og gulltryggði þannig að hann kæmi ekki til greina sem sigurvegari í flokknum. Fleiri dæmi gæti ég nefnt, en læt það vera í bili – en þetta er óásættanlegt og þarf sérstakrar skoðunar við

Hvað er til ráða?

Innra eftirlit í dómarastétt þyrfti að vera langtum virkara og áhrifameira. Augljós mistök og mismunun eiga að hafa afleiðingar. Ytra eftirlit er líka sjálfsagt af hálfu LH og fagráðs í hrossarækt, auk þess aðhalds og gagnrýni, sem veitt er af hálfu knapa og eigenda hrossanna. – og birtist m.a. í þessari grein hér.

Endurnýjun í dómarastétt þarf að vera örari. Það tengist að vissu leyti lokaniðurstöðu þessara hugleiðinga, að maður komi í manns stað. Jafnframt þarf að tryggja að nýir dómarar hljóti örugga handleiðslu hjá því fólki í dómarastétt, sem mests trausts nýtur og er næsta óumdeilt í sínum störfum. Slík endurnýjun er auðvitað alveg nauðsynleg, ef unnt á að vera að beita svipaðri aðferð og vitnað var til hér í upphafi: Að setja – um lengri eða skemmri tíma – þá dómara í skammarkrókinn, sem ekki hafa staðið undir því trausti sem gera verður til allra sem vilja tilheyra dómarastéttinni. Það hefur vissulega verið gert, en sjaldnar en tilefni hafa gefist til.

Greinarhöfundur er Daníel Jónsson knapi og hrossaræktandi

Laufskálaréttir framundan

Á laugardaginn 26. september nk. eru stóðréttir í Laufskálarétt í Skagafirði. Þetta er ein af vinsælustu stóðréttum landsins og er yfirleitt mikið fjör og gleði í Skagafirðinum þessa helgi.

Þeir sem hafa gaman að því að fylgjast með stóðinu koma niður eru hvattir til að vera komnir að Laufskálarétt kl 12. Réttarstörf hefjast svo upp úr kl 13 undir stjórn Bergs Gunnarssonar á Narfastöðum. Áætlað er að réttarstörf ljúki upp úr kl 15:30.

Opið hús á Varmalandi á föstudeginum

Líkt og síðustu ár verður opið hús á Varmalandi föstudaginn 25. september. frá kl. 13 – 17:00. Kynning á vatnsbrettaþjálfun og hross á öllum aldri til sýnis og sölu. Léttar veitingar og góður félagsskapur.

Menntaráðstefna FEIF og LH í vikunni

Það er nóg um að vera í Skagafirði dagana fyrir réttirnar en Menntaráðstefna FEIF og LH verður haldin í dagana 23.–25. september 2026. Ráðstefnan hefst eftir hádegi miðvikudaginn 23. og endar um hádegi föstudaginn 25. september. Meginþema ráðstefnunnar verður gangskiptingar og gangsetning ásamt hraðabreytingum.

Tamdi tugi villihesta einn

Næsti gestur þáttarins ,,Á mannlegum nótum“ er hestamaðurinn kunni Þorvaldur Ágústsson á Hvolsvelli.
Valdi fer yfir feril sinn í hestamennskunni, m.a. hvernig hann tókst á við að temja stóð villtra hrossa í Svíþjóð einn og óstuddur, stofnun Félags tamningamanna og Eiðfaxa og hvaðan viðurnefnið Roy kemur.
Fjölbreytt og áhugavert spall við kappa sem hefur víða komið við.
Umsjónarmaður og spyrill er Hulda G. Geirsdóttir.

Þátturinn er aðgengilegur kl 20:00 á EiðfaxaTV.