Íslenska landsliðið valið – eitt sæti laust
Mikil eftirvænting hefur verið fyrir kynningu Íslenska Landsliðsins. 21 knapi skipa landsliðið í hestaíþróttum sem keppir fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramótinu í Berlín sem hefst þann 4. ágúst n.k.
Þar af eru þrír titilverjandi heimsmeistarar frá HM 2011 í Austurríki sem eiga keppnisrétt á á HM í Berlín en það eru þeir Jóhann Rúnar Skúlason, Eyjólfur Þorsteinsson og Bergþór Eggertsson. Hinrik Bragason, Viðar Ingólfsson og Jakob S. Sigurðsson tryggðu allir sér sæti á Gullmótinu fyrr í sumar svo fjögur sæti voru laus.
Landsliðsstjórnin valdi í þau sæti og voru þau Daníel Jónsson, Sigursteinn Sumarliðason og Guðlaug Marín Guðnadóttir fyrir valinu. Einu sæti verður haldið opnu og verður valið í það eftir helgi þegar Íslandsmóti fullorðna er lokið.
Fimm ungmenni eru í landsliðshópnum en ljóst var hvaða fjögur ungmenni myndu keppa fyrir Íslandshönd eftir Gullmótið en Arna Ýr Guðnadóttir, Arnar Bjarki Sigurðsson og Flosi Ólafsson tryggðu sér öll sæti á því móti. Konráð Valur Sveinsson var síðan valin eftir mótið til að keppa í 100m. skeiði. Gústaf Ásgeir Hinriksson bættist í hópinn eftir að hafa verið valin af liðstjóra.
Liðið samanstendur því af sjö keppendum í fullorðinsflokki, fimm ungmennum, fimm knöpum á kynbótahrossum og þremur titilverjendum. Liðið hefur á að skipa reyndum og sterkum knöpum og hestum, enda vænst mikils af liðinu á þýskri grundu í ágúst.
Landslið 2013
Jóhann Rúnar Skúlason og Hnokki frá Fellskoti (ríkjandi heimsmeistari) – Tölt – Fjórgangur
Eyjólfur Þorsteinsson Spyrna frá Vindási (ríkjandi heimsmeistari) – Gæðingaskeið – 100 og 250 m skeið
Bergþór Eggertsson og Lótus frá Aldenghoor (ríkjandi heimsmeistari) – Gæðingaskeið – 100 og 250 m skeið
Hinrik Bragaaon og Smyrill frá Hrísum – Tölt – Fjórgangur
Viðar Ingólfsson og Hrannar frá Skyggni – Fjórgangur – Slaktaumatölt
Jakob Svavar Sigurðsson og Alur frá Lundum – Fimmgangur – Slaktaumatölt -Gæðingaskeið – 100 og 250 m skeið
Guðlaug Marín Guðnadóttir og Toppur frá Skarði – Gæðingaskeið – 100 og 250 m skeið
Sigursteinn Sumarliðason og Skuggi Hofi – Fimmgangur – Slaktaumatölt – gæðingaskeið- 100 og 250 m skeið (liðstjóravalinn)
Daníel Jónsson og Oliver frá Kvistum – Fimmgangur – Slaktaumatölt – gæðingaskeið – 100 og 250 m skeið (liðsjóravalinn)
Eitt sæti verður valið eftir næstu helgi
Ungmenni
Flosi Ólafsson og Möller frá Blesastöðum 1A – Tölt – Fjórgangur
Arna Ýr Guðnadóttir og Þróttur frá Fróni – Tölt – Fjórgangur
Arnar Bjarki Sigurðarson og Arnar frá Blesastöðum 2A – F1 – T2 – Gæðingaskeið – 100 og 250 m skeið
Konráð Valur Sveinsson og Þórdís frá Lækjarbotnum – Gæðingaskeið – 100 og 250 m skeið (liðstjóravalinn)
Gústaf Ásgeir Hinriksson og Björk frá Enni Fjórgangur – Slaktaumatölt (liðstjóravalinn)
Varaknapi: Birgitta Bjarnadóttir og Blika frá Hjallanesi
Kynbótahross:
Stóðhestar:
7. vetra og eldri – Feykir frá Háholti og Sigurður Óli Kristinsson (8,71)
6 vetra – Gígur frá Brautarholti og Þórður Þorgeirsson (8,53)
5 vetra – Desert frá Litlalandi og Guðmundur Fr Björgvinsson (8,35)
Hryssur:
7 vetra og eldri – Salka frá Snjallsteinshöfða og Elías Árnason (8,32)
6 vetra – Fura frá Hellu og Guðmundur Fr Björgvinsson (8,53)
5 vetra – Vakning frá Hófgerði og Sigurður V Matthíasson (8,33)