Íslenski hesturinn á Barnamenningarhátíð

  • 17. apríl 2012
  • Fréttir
Íslenski hesturinn á Barnamenningarhátíð

Barnamenningarhátíð í Reykjavík hófst í dag og stendur til 22. apríl. Þema hátíðarinnar er Uppspretta og endurspeglast það með ólíkum hætti í tælplega 200 viðburðurm sem börn og fullorðnir í fylgd með börnum geta sótt sér að kostnaðarlausu.

Hestaleigan Íslenski hesturinn tekur þátt í Barnamenningarhátíðinni því Sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 19. apríl, klukkan 14.30 tekur Begga Rist, leiðsögu- og hestamaður, fagnandi á móti gestum og sýnir hesthúsið, kynnir starfsemina og segir jafnframt frá hæfileikum og sérkennum íslenska hestsins. Begga mun einnig fjalla um hestinn sem uppsprettu í menningu þjóðarinnar. Þá verður teymt undir börnum í gerði til kl 16.

Hestaleigan Íslenski hesturinn er til húsa að Surtlugötu 3 í Fjárborg í Reykjavík.

Allar frekari upplýsingar um Barnamenningarhátíð í Reykjavík má nálgast hér.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link