Ísmót Hrings á Dalvík – úrslit

  • 22. febrúar 2011
  • Fréttir
Ísmót Hrings á Dalvík - úrslit

Á sunnudag var haldið Ísmót Hrings á Hrísatjörn.

Fram kemur á heimasíðu Hrings að aðstæður á tjörninni hafi verið frábærar, og veður hagstætt, logn, sól og hiti rétt yfir frostmark. Um þrjátíu skráningar voru á mótið sem styrkt var af Lífland og Húsasmiðjunni. Úrslit mótsins voru eftirfarandi en einnig má sjá video frá keppninni á heimasíðu Hrings.

Tölt

1. Atli Sigfússon og Krummi frá Egilsá – 6,8
2. Stefán Friðgeirsson og Dagur frá Strandarhöfða – 6,6
3. Anna Kristín Friðriksdóttir og Glaður frá Grund – 6.5
4. Atli Sigfússon og Vaka frá Hólum – 6,4
5. Ragnar Stefásson og Maur frá Fornhaga – 6,4
6. Þór Ingvason og Johnny frá Hala – 6,04

Skeið

1. Ragnar Stefásson og Maur frá Fornhaga – 8,75 sek.
2. Svavar Hreiðarsson og Jóhannes Kjarval frá Hala – 9,11 sek.
3. Svavar Hreiðarsson og Ásadís frá Áskoti – 9,56 sek
4. Sveinbjörn Hjörleifsson og Drífa Drottning frá Dalvík – 9,69 sek.
5. Guðrún Rut Hreiðarsdóttir og Drottning frá Dæli – 10,34 sek.
6. Sveinbjörn Hjörleifsson og Náttar frá Dalvík – 10,38 sek.
7. Anna Kristín Friðriksdóttir og Svarti-Svanur frá Grund – 11,64 sek.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link