Ísreið

  • 3. mars 2014
  • Fréttir
Karlareið á Svínavatni

Árleg karlareið á Svínavatni (Húnavatnshreppi) verður laugardaginn 8. mars. Mæting er við Dalsmynni kl. 14:00. Riðið verður eftir endilöngu vatninu sem er liðlega 10 km langt og 1-2 km breitt. 

Áð verður á nokkrum stöðum á leiðinni þar sem búið verður að koma fyrir einhverju góðgæti fyrir bæði hross og menn, Veðurspáin er góð og ekkert til fyrirstöðu annað en að skella sér með í þessa einstöku karlareið á Svínavatni óháð búsetu eða hestamannfélagi (þú þarft að vera karlmaður).

Að ferðinni lokinni verður haldið í Reiðhöllina þar verður grillað, sungið og spaugað.

Verð er kr. 2.500 pr.mann og er miðað við að menn sjái að mestu um sína drykki sjálfir.

Skráning í ferðina er á [email protected] eða hjá Hirti í 861-9816, Hillmari í 848-0033, Guðmundi 848-1775. Ekki seinna en á fimmtudagskvöld 6.mars. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link