Íþróttamót Dreyra

  • 10. ágúst 2012
  • Fréttir
Íþróttamót Dreyra

Íþróttamót hestamannafélagsins Dreyra verður haldið í Æðarodda, við Akranes dagana 16.-19. ágúst n.k. Tímasetning og nánari dagskrá verður kynnt þegar skráning liggur fyrir. Upplýsingar verða kynntar áwww. ia.is (undir hestamennska)

Skráning fer fram sunnudaginn 12. ágúst. Frá klukkan 19:30-22:00 er tekið á móti skráningu í síma 867 1668 (Kristín) og 8609794 (Svandís). Einnig er hægt að senda skráningu í tölvupósti á netfangið [email protected] fyrir kl. 12:00 mánudaginn 13. ágúst. Umsjón með skráningu hefur Kristín Frímannsdóttir.
 
Skráningargjöld eru 4.000.- fyrir hverja keppnisgrein í 1. flokki, 2. flokki og ungmennaflokki, og fyrstu skráningu í barna- og unglingaflokki en 3.000 fyrir síðari skráningar í barnaflokk og unglingaflokk. Hámark á fjölskyldu er kr. 40.000.- Reiknisnúmerið er 552 14 601933 kt. 450382-0359. Senda þarf kvittun í tölvupósti á [email protected]. Skýring: nafn og kt. knapa sem greitt er fyrir. Greiðsla þarf að hafa borist fyrir kl 16:00 þriðjudaginn 14. ágúst.
 
Við skráningu þarf eftirfarandi að koma fram:
 
Nafn og kenntitölu keppenda.
Nafn hests og IS númer
Hestamannafélag sem keppt er fyrir
Keppnisgreinar og upp á hvora hönd er sýnt.
Hver sé greiðandi, ef það er ekki knapinn sjálfur.
 
Keppnisgreinar:
 
Fimmgangur í 1. flokk, 2. flokk, ungmennaflokk, unglingaflokki
Fjórgangur í 1. flokk, 2flokk, ungmennaflokk, unglingaflokk, barnaflokk
Tölti í 1.flokk, 2. flokk, ungmennaflokk, unglingaflokk, barnaflokk
T2 í 1. flokk, 2. flokk, ungmennaflokk
Gæðingaskeið í 1. flokk, 2. flokk, ungmennaflokk, unglingaflokk
100m skeið
150m skeið

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link