Íþróttamót Glaðs
.
Glaður heldur sitt árlega opna íþróttamót á fimmtudaginn 1. maí og hefst mótið stundvíslega kl. 10:00.
Dagskrá:
Forkeppni:
Fjórgangur V2 – opinn flokkur, barnafl., unglingafl. og ungmennafl.
Fimmgangur F2 – opinn flokkur
Tölt T7 – barnaflokkur
Tölt T3 – unglingaflokkur, ungmennaflokkur og opinn flokkur
Pollaflokkur í reiðhöllinni – (9 ára og yngri), frjáls aðferð
Úrslit:
Fjórgangur – opinn flokkur, barnafl., unglingafl. og ungmennafl.
Fimmgangur – opinn flokkur
Tölt – barnaflokkur, unglingafl., ungmennafl. og opinn flokkur
100 m skeið
Skráningar:
Þið farið inn á þessa slóð: www.sportfengur.com og smellið á SKRÁNINGAKERFI vinstra megin á síðunni (fyrir neðan Login hnappinn, athugið að ekki á að logga sig inn á SportFeng). Tengill á SportFeng er líka á vef Glaðs, undir Ýmsir tenglar hægra megin á forsíðunni. Á forsíðu skráningakerfisins smellið þið á Skráning í valmynd og síðan á flipann Mót, áframhaldið rekur sig sjálft. Munið að fylla í öll atriði og að fara í vörukörfu í lokin til að fá upplýsingar um greiðslu skráningagjalda.
Ekki er hægt að skrá í pollaflokkinn með skráningakerfinu, sendið tölvupóst á Þórð eða Svölu (sjá hér neðar). Ekkert skráningargjald er í pollaflokk og allir fá viðurkenningu.
Ef einhver lendir í vandræðum með skráningar er sjálfsagt að hafa samband við:
Svölu í 861 4466 eða [email protected]
Þórð í 893 1125 eða [email protected]
Ganga þarf frá greiðslu skráningagjalda með innlögn á bankareikning en þær upplýsingar koma fram í skráningarferlinu. Athugið að skráningin verður ekki virk fyrr en gjaldkeri hefur merkt við að greiðsla hafi borist! Gjaldið er kr. 1.500 á skráningu. Síðasti dagur skráninga er þriðjudagurinn 29. apríl og það sama gildir um greiðslu skráningagjalda.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH