Jakob og Helga Una með sýnikennslu á Flúðum

  • 6. desember 2022
  • Tilkynning
Sýnikennslan verður í reiðhöllinni á Flúðum í kvöld.

Helga Una Björnsdóttir og Jakob Svavar Sigurðsson eru hestamönnum kunnug fyrir afrek sín í hestaíþróttum. Reiðmennska þeirra beggja endurspeglar mikla fagmennsku og fágun hvar sem þau koma fram.

Í kvöld, miðvikudaginn, 7.desember klukkan 20:00 ætla þau að heiðra okkur hestamenn með nærveru sinni og bjóða uppá sýnikennslu í Reiðhöllinni á Flúðum.

Félagar í hestamannafélaginu Jökli fá að kaupa miðann í forsölu HÉR á 1.500 krónur, almennt verð er 2.000 krónur og verður selt við innganginn. Opið verður í kaffisölunni.

Ágætu hestamenn nær og fjær, látum þetta tækifæri ekki fram hjá okkur fara, mætum og förum full fróðleiks og innblásturs inn í komandi vetur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link