Jákvætt FEIF þing í Strasbourg
JENS EINARSSON:
Velferð hesta, siðferði í keppni og samskiptum þjóða innan FEIF og lyfjanotkun í keppni voru meginmál aðalfundar FEIF sem haldinn var í Strasbourg um helgina.
Kynntar voru til sögunnar sérstakar „Siðareglur FEIF“ (Code of Ethics) sem ganga í meginatriðum út á að fólk sýni hestinum og hvert öðru virðingu og vináttu, virði leikreglur, misnoti ekki hross og annað fólk sér til framdráttar, og svo framvegis.
Stjórn FEIF hefur þegar skrifað undir plaggið og skuldbatt sig þar með til að fylgja reglunum. Reglurnar voru hins vegar aðeins kynning og þær voru ræddar ítarlega í nefndum. Ýmsar breytingartillögur komu fram og þær munu verða ræddar í stjórn FEIF, sem mun væntanlega koma fram með nýja tillögu innan tíðar. Almennt var gerður góður rómur að þessu framtaki.
Gunnar Sturluson, varaformaður FEIF, segir að stemmningin á aðalfundinum hafi verið jákvæð. Engar meiriháttar reglubreytingar hafi verið samþykktar en nokkrum málum hafi verið frestað til næsta aðalfundar, sem verður haldinn á Íslandi 2014.
Gunnar segir að lyfjamál hafi verið allnokkuð rædd og hann hafi lagt fram tillögur í því sambandi, sem miða að því að fyrirbyggja að upp komi óvissa um lögsögu, eins og gerðist þegar ólöglegt lyf greindist í hesti hjá austurískum keppanda á Mið-Evrópska meistaramótinu í fyrra.
„Staðan er hins vegar sú að allnokkur Íslandshestasamtök innan FEIF eru ekki í hestaíþróttasambandi viðkomandi landa og heyra ekki undir ákveðið lyfjaeftirlit. Þannig að það þarf að fara yfir málið í heild sinni og reyna að koma því í viðunandi horf.
Almennt er fólk fremur bjartsýnt á framtíð íslenska hestins í FEIF löndunum, en ýmsir hafa þó töluverðar áhyggjur af minnkandi nýliðun og útbreiðslu hjá okkur á meðan aukning er í öðrum hestakynjum.
Nokkur áhugaverð erindi voru flutt á þinginu. Þorgeir Guðlaugsson flutti erindi um dómara- og keppnismál og varpaði fram spurningum um hvað sé í raun leyfilegt og hvað ekki út frá siðferðilegum sjónarmiðum.
Þorvaldur Kristjánsson kynnti rannsókn sína á gangtegundum íslenska hestsins. Erindið hlaut mjög góðan hljómgrunn og verður án efa haft til hliðsjónar í svokallaðri TaskForce nefnd FEIF sem vinnur að breytingum á regluverkinu.
Frönsk kona, Silvie Rizo, sagði síðan frá stigunarkerfi fyrir frístundahross á vegum franska hestasambandsins. Íslensk hross hafa verið stiguð í þessu kerfi síðan 2011 og ef þau standast skoðun fá þau vottorð um að þau séu nothæf sem slík; séu ekki hættuleg. Slíkt vottunarkerfi hefur verið til umræðu hjá LH í nokkur ár og ég býst við að það verði ekki langt í að hugmyndir um það verði lagðar fram,“ segir Gunnar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson