Jarl sýndur á Stóðhestadegi
Ungur og efnilegir gæðingar koma fram á Stóðhestadegi Eiðfaxa.
Þar á meðal er hin rauðglófexti Jarl frá Árbæjarhjáleigu II, geðgóður alhliðagæðingur undan Stála frá Kjarri og Eldingu frá Árbæjarhjáleigu, undan Huga frá Hafsteinsstöðum og Fánu frá Hala.
Jarl varð í 8. sæti í flokki 4 vetra stóðhesta á landsmóti 2011 með 8,21 í aðaleinkunn. Hann hlaut þa 8,15 fyrir sköpulag og 8,25 fyrir kosti þar af einkunnina 8,5 fyrir samærmi, prúðleika, tölt, brokk, vilja og geðslag og fegurð í reið. Jarl er þjáll og fasmikill fótaburðargæðingur sem á framtíðina fyrir sér.
Marjolijn Tiepen býr að öllum upplýsingum um Jarl og má nálgast þær í síma 864-6958 eða gegnum netfangið [email protected].
Stóðhestadagur Eiðfaxa verður haldið á félagssvæði hestamannafélagsins Sleipnis laugardaginn 28. apríl og hefst hann kl. 14.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH