Járningarnámskeið um helgina
Fræðslunefnd hestamannafélagsins Funa í Eyjafirði stendur fyrir járninganámskeiði með Gesti Páli Júlíussyni dýralækni og járningarmeistara dagana 3. – 4. febrúar.
Námskeiðið hefst með bóklegri kennslustund í Funaborg á föstudagskvöldinu og á laugardeginum verður verkleg kennsla haldin í hesthúsinu að Hólshúsum. Verð er 15.000 kr en námskeiðið er öllum opið, óháð félagaaðild.
Skráning er á netfangið [email protected] til kl. 13 á föstudag, 3. febrúar.
Sjá nánar inni á funamenn.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH