Jolly með tvo í úrslitum
Forkeppni í slaktaumatölti var að ljúka rétt í þessu á heimsbikarmótinu World toelt.
Engin komst nálægt frammistöðu Frauke og Óskadísar, en Jolly Schrenk tryggði sér tvöfalt sæti í A-úrslitum. Hún sýndi Bjalla von Berlar og Glæsi von der Igelsburg, báða með glæsibrag.
Síðust í braut var Josefin Birkebro hún var á Þór frá Kaldbak. Þór er nýfluttur frá Íslandi til Svíþjóðar, en hann er í eigu Magnúsar Skúlasonar. Þór er ósýndur, undan Hervarsdótturinni Heru frá Halldórsstöðum og Sandi frá Varmada. Þau hlutu 6,13 og náðu því ekki úrslitum.
1. Frauke Schenzel – Óskadís vom Habichtswald 7,23
2. Jolly Schrenk – Bjalli von Berlar 6,97
3. Annika Skrubbeltrang – Goði frá Hvoli 6,80
4. Jolly Schrenk – Glæsir von der Igelsburg 6,47
5.-6. Magnús Skúlason – Aspar frá Fróni 6,33
5.-6. Lisa Schurger – Frami vom Scholberg 6,33
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH