Kaffihús í Reiðhöllinni í Víðidal
Á laugardaginn verður opnað kaffihús í Reiðhöllinni í Víðidal á neðri hæð húsins (andyrinu). Loksins, loksins geta hestamenn komið saman og fengið sér kaffi og með því í notarlegheitum. Til að byrja með verður opið frá kl. 12:00 – 18:00 á laugardögum og sunnudögum.
Í boði verður m.a. Kaffi, kakó, gos, ávaxtasafar, öl, kökur, vöfflur, samlokur, pylsur, sælgæti, sushi og súrmatur.
Endilega kíkið við.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári