Kallakvöld á morgun

  • 5. maí 2011
  • Fréttir
Kallakvöld á morgun

Miðasala stendur yfir á Kallakvöld Sleipnis sem haldið verður í Þingborg föstudaginn 6. maí.

“Miðar eru seldir á Toyota Selfossi og er síðasti séns að verða sér úti um miða fimmtudaginn 5. maí. Þeir sem ómögulega komast til að kaupa miða geta hringt í Brósa í síma 695 6135 og gengið frá pöntun.  Það verða boðnir upp folatollar undir frábæra hesta sem eru kynntir á Fésbókarsíðu Kallakvölds Sleipnis, svo verður, happadrætti, skemmtun, söngur, grín og glens. Sleipnismenn bjóða alla kalla hjartanlega velkomna að koma og gleðjast með okkur í Flóanum í vorblíðunni.

Miðaverð er 5000 kall fyrir humarsúpu og steik, bar á staðnum,” segir í tilkynningu frá skipuleggjendum Kallakvöldsins.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link