Kalsi frá Þúfum er efstur í A-flokki gæðinga
Mette Mannseth og Kalsi frá Þúfum í fimmgangi á Íslandsmótinu Ljósmynd/Eiðfaxi
Þeir voru margir glæstir gæðingarnir sem komu fram í forkeppni í A-flokki gæðinga á Fjórðungsmótinu í Borgarnesi og litlu munar á eftu hestum.
Kalsi frá Þúfum er í forystu að forkeppni lokinni með einkunnina 8,67, knapi á honum er Mette Mannseth sem stóð efst í A-flokki á FM2017 á Trymbli frá Stóra-Ási og ætlar sér eflaust að leika þann leik aftur á syni hans Kalsa. Í öðru sæti er Glúmur frá Dallandi með sömu einkunn en lægri á aukastöfum knapi á honum er Jakob Svavar Sigurðsson. Kastor frá Garðshorni á Þelamörk er þriðji með 8,66 í einkunn en knapi hans er Konráð Valur Sveinsson skammt undan er svo Sægrímur frá Bergi með 8,64 í einkunn en Viðar Ingólfsson sýndi Sægrím.
Hér má sjá niðurstöðu í A-flokki gæðinga.
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Kalsi frá Þúfum / Mette Mannseth | 8,67 |
| 2 | Glúmur frá Dallandi / Jakob Svavar Sigurðsson | 8,67 |
| 3 | Kastor frá Garðshorni á Þelamörk / Konráð Valur Sveinsson | 8,66 |
| 4 | Sægrímur frá Bergi / Viðar Ingólfsson | 8,65 |
| 5 | Vegur frá Kagaðarhóli / Þórarinn Eymundsson | 8,56 |
| 6 | Forkur frá Breiðabólsstað / Flosi Ólafsson | 8,54 |
| 7 | Ronja frá Yztafelli / Fredrica Fagerlund | 8,52 |
| 8 | Kíkir frá Hafsteinsstöðum / Skapti Steinbjörnsson | 8,48 |
| 9 | Lokbrá frá Hafsteinsstöðum / Skapti Steinbjörnsson | 8,48 |
| 10 | Lyfting frá Kvistum / Siguroddur Pétursson | 8,42 |
| 11 | Þytur frá Skáney / Randi Holaker | 8,41 |
| 12 | Forleikur frá Leiðólfsstöðum / Hlynur Guðmundsson | 8,41 |
| 13 | Þróttur frá Akrakoti / Líney María Hjálmarsdóttir | 8,40 |
| 14 | Kolfinna frá Auðsstöðum / Flosi Ólafsson | 8,39 |
| 15 | Ögri frá Bergi / Gústaf Ásgeir Hinriksson | 8,38 |
| 16-17 | Viðar frá Hvammi 2 / Lilja Maria Suska | 8,36 |
| 16-17 | Teningur frá Víðivöllum fremri / Elvar Logi Friðriksson | 8,36 |
| 18 | Esja frá Grafarkoti / Elvar Logi Friðriksson | 8,34 |
| 19 | Spenna frá Blönduósi / Egill Þórir Bjarnason | 8,34 |
| 20 | Skutla frá Akranesi / Belinda Ottósdóttir | 8,32 |
| 21 | Sigur frá Bessastöðum / Jóhann Magnússon | 8,30 |
| 22 | Kata frá Fremri-Gufudal / Styrmir Sæmundsson | 8,29 |
| 23 | Hnokki frá Reykhólum / Hrefna Rós Lárusdóttir | 8,27 |
| 24 | Kveikja frá Skipaskaga / Leifur George Gunnarsson | 8,26 |
| 25 | Mætta frá Bæ / Barbara Wenzl | 8,25 |
| 26 | Áfangi frá Víðidalstungu II / Jessie Huijbers | 8,25 |
| 27 | Herská frá Snartartungu / Halldór Sigurkarlsson | 8,24 |
| 28 | Goði frá Bessastöðum / Jóhann Magnússon | 8,22 |
| 29 | Ljósvíkingur frá Steinnesi / Magnús Bragi Magnússon | 8,18 |
| 30 | Mörk frá Hólum / Sigurður Heiðar Birgisson | 8,13 |
| 31 | Arnar frá Skipanesi / Guðbjartur Þór Stefánsson | 8,09 |
| 32 | Sæmd frá Höskuldsstöðum / Gestur Stefánsson | 8,04 |
| 33 | Goði frá Bjarnarhöfn / Siguroddur Pétursson | 8,00 |
| 34 | Páfi frá Breiðholti í Flóa / Julian Veith | 8,00 |
| 35 | Lykkja frá Laugarmýri / Hanna Sofia Hallin | 7,93 |
| 36 | Roði frá Lyngholti / Bergrún Ingólfsdóttir | 7,75 |
| 37 | Skuggi frá Hríshóli 1 / Lárus Ástmar Hannesson | 7,75 |
| 38 | Blika frá Skjólbrekku / Anita Björk Björgvinsdóttir | 7,66 |
| 39 | Niður frá Miðsitju / Ólafur Guðmundsson | 7,62 |
| 40 | Nátthrafn frá Varmalæk / Þórarinn Eymundsson | 7,57 |
| 41 | Konungur frá Hofi / Ásdís Brynja Jónsdóttir | 7,43 |
| 42 | Flóki frá Giljahlíð / Hanna Sofia Hallin | 7,43 |
| 43 | Hrund frá Lindarholti / Þorgeir Ólafsson | 7,25 |
| 44-46 | Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli / Bjarni Jónasson | 0,00 |
| 44-46 | Eldþór frá Hveravík / Heiðar Árni Baldursson | 0,00 |
| 44-46 | Korgur frá Garði / Bjarni Jónasson | 0,00 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH