KB mótaröðin að hefjast

  • 13. febrúar 2023
  • Tilkynning
Fyrsta mótið er á laugardaginn

KB mótaröðinni hefst á laugardaginn, 18. febrúar, þegar keppt verður í fjórgangi V2 og V5. Mótið hefst kl. 12:00 á keppni í barnaflokki.

Búið er að opna fyrir skráningu inn á www.sportfengur.com en skráningargjald er 3.000 kr. fyrir eldri flokka og 1.500 kr. fyrir barnaflokk. Skráningu lýkur miðvikudaginn 15. febrúar. Ef skráð er eftir að skráningarfrestur er liðinn er skráningargjaldið 4.000 kr.

Skráning fyrir pollaflokk sendist á [email protected]. KB mótaröðin er einstaklingskeppni og telja öll þrjú mótin.

Vegleg verðlaun frá Kaupfélagi Borgfirðinga.

Vinsamlegast sendið staðfestingu þegar greiðslu er lokið á netfangið [email protected] Reikningsupplýsingar: 326-13-4810 kt. 4810790399

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link