KB-mótaröðin – Samantekt frá mótum vetrarins
KB-mótaröð Faxa og Skugga lauk á laugardaginn með keppni í tölti og fimmgangi. Þátttaka var eins og í hin þrjú skiptin góð. Ljóst er að þessi mótaröð hefur orðið til að efla mjög keppnis- og félagsanda hestamanna í Borgarfirði og kannski Vesturlandi öllu, því þátttakendur hafa komið víða að og áhorfendur verið fjölmargir á öllum mótunum. Höllin góða, Faxaborg hefur gert þetta mögulegt og mun hún án efa spila stórt hlutverk í vestlenskri hestamennsku á næstu árum.
Þar sem þetta var síðasta mótið réðust einnig úrslit í liða- og einstaklingskeppni og mátti glöggt finna spennu í höllinni þegar leið á forkeppni og ekki síður í úrslitum. Létu þar áhorfendur mjög til sín taka við að hvetja liðsfélaga áfram og „bauna“ á andstæðinga (og í einstaka skipti að beina því til dómara ef „andstæðingar“ voru ekki að standa sig) en allt fór þó vel fram og tilþrifin þannig að menn trúðu vart sínum eigin augum.
Til að kóróna verðlaunaflóðið „ruddi“ Gunnar Halldórsson bóndi í Þverholtum sig og keypti laglegan farandbikar handa vinsælasta knapanum. Það voru áhorfendur sem völdu knapann og í þetta sinn kom hann í hlut Gyðu Helgadóttur á Mið-Fossum. Gyðu má sjá hér á mynd á stóðhestinum Biskup frá Sigmundarstöðum, en á honum vann hún öruggan sigur í töltinu á laugardaginn.
Liðakeppnin á stóran þátt í því hversu mikill áhugi var fyrir þessari mótaröð og voru margir sótraftar á flot dregnir til að styrkja einstök lið og tryggja dýrmæt stig í. Liðakeppnina og stigaútreikninginn má útfæra á ýmsan hátt og ekki víst að hann verði eins að ári.
Þá er alltaf erfitt þegar keppendum er skipt í flokka eftir styrkleika og reynslu og ugglaust erfitt að setja reglur sem allir verða sáttir við. Þessar reglur þarf þó að skýra betur þannig að „gamlir winnerar“ verði ekki „gjaldfelldir“ og látnir keppa eins og annars flokks menn, með alla sína reynslu og kunnáttu.
Reynsla af þessu mótahaldi í vetur er með þeim hætti að það verður án efa endurtekið að ári. Þeir sem skipulögðu það eiga miklar þakkir skyldar og allir sem unnu við framkvæmdina stóðu sig mjög vel. Auðvitað verða einhverjar breytingar en andinn er þannig að nú stefna menn fram, harðákveðnir í að gera þetta enn gæsilegra og enn skemmtilegra að ári.
Gunnhildur Birna Björnsdóttir hefur séð um að taka myndir af KB mótaröðinni í vetur og eru myndir af síðasta móti væntanlegar inn á næstunni: http://picasaweb.google.com/gunnhildurbirna
Úrslit í einstökum greinum á laugardaginn og liða- og einstaklingskeppni vetrarins voru eftirfarandi:
Úrslit í liðakeppni
1 Svörtu riddararnir 191,87
3 Snæfellingar 167,16
2 Gæðakokkar 146,64
4 Múlakot 145,72
5 Byssur og Rósir 130,96
6 Skáney og vinir 119,96
7 Skeiðfélagið Fengur 117,49
8 Tökum á því 64,38
9 Sauðirnir 63,20
10 Afi og ungfrúrnar 39,98
11 Lukkuskessurnar 35,70
12 Garún 32,90
Úrslit í stigakeppni einstaklinga
Barnaflokkur Skuggi og Faxi
1 Konráð Axel 18,08
3 Gyða Helgad. 17,63
2 Atli Steinar 15,48
4 Þorgeir Ólafsson 14,75
5 Aron F.Sigurðss. 13,75
Barnaflokkur Allir
1 Konráð 18,08
3 Guðný M.Siguroddsd 18,01
2 Gyða Helgadóttir 17,63
Unglingaflokkur Skuggi og Faxi
1 Sigrún Rós Helgad. 18,98
3 Klara Sveinbjörnsd. 17,23
2 Þórdís Fjelsted 15,48
4 Íris Ragnarsd. 15,45
5 Hera Sól Hafsteinsd. 15,05
Unglingaflokkur allir
1 Sigrún Rós Helgad. 18,98
2 Svandís Lilja Stefáns 18,68
3 Klara Sveinbjörnsd. 17,23
Ungmennaflokkur Skuggi og Faxi
1 Erla Rúnarsd. 11,95
2 Heiðar Árni Baldurss 11,37
Ungmennaflokkur allir
1 Óskar Sæberg 18,80
2 Marina Schregelmann 18,40
3 Arnar Ásbjörnsson 16,23
2.flokkur Skuggi og Faxi
1 Þórdís Arnard. 17,87
2 Ámundi Sigurðss. 17,73
3 Guðni Halldórss. 17,63
4 Ásberg Jónsson 16,40
5 Ólafur Þorgeirss. 16,20
2.flokkur allir
1 Ólafur Guðmundsson 18,27
2 Þórdís Arnard. 17,87
3 Ámundi Sigurðsson 17,73
1.flokkur Skuggi og Faxi
1 Birna Tryggvad. 20,62
2 Gunnar Halldórsson 20,15
3 Haukur Bjarnason 19,96
4 Benedikt Líndal 19,78
5 Randy Holaker 18,80
1.flokkur allir
1 Birna Tryggvad. 20,62
2 Gunnar Halldórsson 20,15
3 Haukur Bjarnason 19,96
Stigahæðstu knapar samanlagt í öllum flokkum
1 Birna Tryggvad. 20,62
3 Gunnar Halldórsson 20,15
2 Haukur Bjarnason 19,96
4 Benedikt Líndal 19,78
5 Kolbrún Grétarsd. 19,53
6 Sigrún Rós Helgad. 18,98
7 Óskar Sæberg 18,80
8 Svandís Lilja Stefáns 18,68
9 Marina Schregelmann 18,40
10 Ólafur Guðmundsson 18,27
KB-mótaröðin 10.apríl úrslit tölt/fimmgangur
BARNAFLOKKUR-Tölt, A-úrsl
Knapi/Hestur Lið Eink
1 Gyða Helgadóttir / Biskup f.Sigmundastöðum Svörtu riddararnir 6,40/6,92
2 Stefán Hólm Guðnason / Rauðka f.Tóftum Gæðakokkar 5,75/6,42
3 Konráð A.Gylfason / Mósart f. Leysingjast. Svörtu riddararnir 5,60/6,42
4 Valdís B.Guðmundsd. / Framtíð f. Eskiholti 2 Gæðakokkar 5,25/6,08
5 Guðný M.Siguroddsd. / Mosi f.Kílhrauni Snæfellingar 5,75/6,00
UNGLINGAFLOKKUR-Tölt, A-úrsl
Knapi/Hestur Lið Eink
1 Svandís Lilja Stefánsdóttir/Máni f.Skipanesi Svörtu riddararnir 5,90/6,50
2 Nína M. Hauksd. / Ófeigur f. Syðri-Ingveldarst. Múlakot 5,50/6,42
3 Klara Sveinbjörnsd. / Óskar f. Hafragili Svörtu riddararnir 5,60/6,33
4 Sigrún G.Sveinsdóttir / Dynjandi f.Hofi Byssur og Rósir 5,60/5,67
5 Ágústa Rut / Hugar f.Kvíarhól Afi og ungfrúrnar 5,35/5,67
UNGMENNAFLOKKUR-Tölt, A-úrsl
Knapi/Hestur Lið Eink
1 Óskar Sæberg / Drífandi f. Syðri-úlfsstöðum Múlakot 6,50/7,00
2 Marina Schregelmann / Stapi frá Feti Snæfellingur 6,25/6,42
3 Flosi Ólafsson / Prati f.Skrúð Byssur og Rósir 6,10/6,33
4 Arnar Ásbjörnsson / Brúnki f.Haukatungu Snæfellingar 5,40/5,92
5 Heiðar Árni Baldursson / Sólon f. Kambi Múlakot 5,15/5,50
2. flokkur-Tölt, A-úrsl
Knapi/Hestur Lið Eink
1 Guðni Hólm / Smiður f.Hólum Gæðakokkar 6,65/6,67
2 Ólafur Guðmunds. / Hlýri f. Bakkakoti Skeiðfélagið Fengur 6,15/6,25
3 Guðni Halldórsson / Roðaspá f.Langholti Byssur og Rósir 6,10/6,08
4 Þórdís Arnardóttir / Þoka f.Miðgarði Skeiðfélagið Fengur 6,10/6,08
5 Jóhanna Þorbjargard. / Fóstri f.Bessastöðum Múlakot 6,05/5,92
1. flokkur-Tölt, A-úrsl
Knapi/Hestur Lið Eink
1 Birna Tryggvadóttir / Elva f.Miklagarði Svörtu riddararnir 6,85/7,00
2 Gunnar Halldórsson / Eskill f.Leirulæk Byssur og Rósir 6,75/6,83
3 Halla M.Þórðard. / Brimar f.Margrétarhofi Skáney og vinir 7,10/6,58
4 Kolbrún Grétarsd. / Snilld f.Hellnafelli Snæfellingur 6,45/6,50
5 Skúli Skúlason / Gosi f.Lambastöðum Snæfellingur 6,45/6,33
2. flokkur-5.gangur, A-úrsl
Knapi/Hestur Lið Eink
1 Heiðar Árni Baldursson / Glaðning f. hesti Múlakot 5,95/6,20
2 Ámundi Sigurðsson / Amon f.Miklagarði Gæðakokkar 5,00/6,10
3 Ólafur Tryggvason / Lilja f.Brimilsvöllum Snæfellingar 5,35/5,60
4 Nína M. Hauksd. / Mokur f.flugumyri 5,10/5,50
5 Ólafur Guðmunds. / Niður f. Miðsitju skeiðfélagið fengur 5,00/5,45
1. flokkur-5.gangur, A-úrsl
Knapi/Hestur Lið Eink
1 Birna Tryggvadóttir /Röskur f.Lambanesi svörtu riddararnir 7,05/7,65
2 Haukur Bjarnason / Sólon f.Skáney Skáney og vinir 6,50/6,85
3 Randi Holaker /Skáli f.Skáney Skáney og vinir 6,25/6,35
4 Guðlaugur V. Antonsson / Sörli f. Lundi 5,60/6,00
5 Kolbrún Grétarsd. / Ívar f. Miðengi Snæfellingur 5,00/5,90
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH