KB-Mótaröðin
Þann 5. febrúar næstkomandi verður 1. mót KB mótaraðarinnar haldið. Mótið er opið öllum sem áhuga hafa…
Liðakeppni (Lágmark 3 í liði – Opin keppni) – Einstaklingskeppni (Opin keppni)
5. Febrúar Fjórgangur, 26. feb. Gæðingakeppni (A-og B-flokkur), 19.mars Tölt og fimmgangur
Skráningar berast fyrir kl. 22:00 miðvikudaginn 2. feb á netföngin: [email protected], [email protected] eða í s. 691-0280 og 699-6116. Eftirtalið þarf að koma fram í eftirfarandi röð:. Flokkur, Kt.knapa, Knapi, Is númer hests, Hestur, Aldur hests, Litur, Hönd, Lið (ef keppt er í liðakeppni)Ef einstaklingurinn ætlar að vera í liði þarf auk þess að skrá fyrir hvaða lið keppt verður. Öll mótin hefjast kl. 12:00. Skráningargjald er: 1.500.kr fyrir ungmenni, opin flokk, meira keppnisvanir og minna keppnisvanir. (færri en 20 keppnir að baki). 1.000 kr. fyrir annan hest, börn og unglinga.
Keppnisflokkar: Ungmenni, Opin.flokkur, Meira keppnisvanir, minna keppnisvanir, börn og unglingar. Skráninargjald greiðist inn á reikning 0326 – 13 – 004810, kt.481079-0399. í síðasta lagi fimmtudaginn 3. feb. annars verður viðkomandi ekki settur á ráslista. Sendið kvittun á [email protected] (fram þarf að koma nafn knapa og hests).
Allar nánari upplýsingar um reglur og ef einhverjar fyrirspurnir eru varðandi mótið er fólki bent á facebook síðu KB-mótaraðarinnar.
Reglur !!!
Efstu 3 sætin fá stig – einkunir úr forkeppni eru metin til stiga.
Bónusstig úr úrslitum – efstu þrír knapar í hverju liði fá auka bónusstig.
1. sæti =10 stig
2. sæti = 8 stig
3. sæti = 6.stig
4. sæti = 4.stig
5. sæti = 2.stig
6-10. sæti = 1.stig
1. Ótakmarkaður fjöldi í hverju liði.
2. Taka þarf fram við skráningu fyrir hvaða lið keppt verður. Ef keppandi ætlar á annað borð að vera með í liði er ekki hægt að skrá á mótsstað. (Ekki nauðsynlegt að vera í liði!!)
3. Hvert lið þarf að hafa sitt sérkenni.
4. Ef skráningar eru fleiri en 20 í hverjum flokk verða haldin B-úrslit.
5. Í stigakeppni gilda tvö mót af þremur.
6. Ef færri en 5 keppendur eru skráðir í einhvern flokk fellur hann niður og þeir knapar færast upp um flokk.
Mótaröðin fer fram í reiðhöllinni í Borganesi og er haldin á vegum hestamannafélaganna Faxa og Skugga
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH