Keppni fyrir unga knapa
Líflandsmót æskulýðsnefndar Fáks verður haldið 25. og 26. apríl. Keppt verður í tölti, fjórgangi og fimi í öllum flokkum samkvæmt tilkynningu. í unglinga- og ungmennaflokki verður keppt í fimmgangi og slaktaumatölti og í barnaflokki verður keppt í T7.
„Skráningargjöld eru aðeins 1.500 kr á hverja skráningu en skráning verður frá miðnætti 18. og fram að miðnætti 21. apríl á http://skraning.sportfengur.com/ (Veljið skráningu, mót, félag og svo fylla út reitina),“ segir í tilkynningu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH