Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Keppnistímabilið hefst á morgun

  • 25. janúar 2023
  • Tilkynning
Meistaradeild Líflands á morgun, fjórgangur í HorseDay höllinni

Keppnistímabilið hefst á morgun, fimmtudag, þegar keppt verður í fjórgangi í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum. Mót deildarinnar í vetur fara fram í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli. Frítt verður inn því Íslensk verðbréf bjóða áhorfendum að njóta fyrstu keppni vetrarins þeim að kostnaðarlausu.

Átta lið og 40 knapar munu keppa í átta mismunandi greinum í deildinni í vetur. Fjórgangur verður á dagskrá 26. janúar, slaktaumatölt 9. febrúar, fimmgangur 3. mars, gæðingafimi 23. mars, gæðingaskeið og 150-metra skeið 8. apríl og tölt og 100-metra skeið 15. apríl, en þá verður einnig lokahátíðin haldin. HorseDay mun bjóða uppá léttar veitingar í tilefni þess að deildin er að hefjast og einnig verður sérstakt tilboð á áskriftum í HorseDay smáforritinu á staðnum.

Veitingasalan verður á sínum stað og matseðillinn er glæsilegur. Boðið verður uppá:

o Ofnsteikt lambalæri með bernaise, kartöflum og grænmeti

o Tælensk kjötsúpa

o Samlokur frá Vor

o Pizzusneiðar frá Kaffi Krús

Gestir eru hvattir til að panta sér mat fyrir fram með því senda beiðni um slíkt á info@ingolfshvoll.is, því þá er um leið hægt að taka frá sæti í stúkunni fyrir kvöldið.

Húsið og veitingasalan opnar kl. 17:30, upphitunarhestur kemur í braut kl. 18:30 og mótið hefst síðan stundvíslega kl. 19:00.

Fyrir þá sem ekki eiga heimangengt þá er nauðsynlegt að vita að öll mót Meistaradeildar Líflands verða aðgengileg á streymisveitu Alendis.is og einnig er þar að finna ýmis konar aukaefni tengt hestaíþróttum. Það er því um að gera að tryggja sér áskrift í tíma og vera tilbúinn fyrir alla viðburði vetrarins í hestaíþróttum.

Texti: Hilda Karen Garðarsdóttir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar