Keppt í slaktaumatölti og skeiði í Fákaseli
Meistaramót Fákasels og Ljúfs verður haldið í Fákaseli næstkomandi sunnudag, 22. mars kl. 14. Opið er fyrir skráningu á þessa síðustu keppni mótaraðarinnar en að þessu sinni verður keppt í slaktaumatölti og skeiði í gegnum höllina, samkvæmt tilkynningu frá aðstandendum:
„Það er allt opið í stigakeppninni en þar eru glæsileg verðlaun í boði, eða málverk eftir þær Sigurlínu Kristinsdóttur fyrir opna flokkinn og eftir Ástey Art fyrir efsta unglinginn;
Skráning í T2 fer fram í gegnum Sportfeng en fólk er vinsamlegast beðið um að skrá í skeiðið í gegnum netfangið [email protected]. Skráning stendur yfir til hádegis á laugardaginn, 21. mars.
Lágmarksfjöldi í opna flokkinn í skeiði eru 10 skráningar, ef ekki berast 10 skráningar fellur þessi grein niður að þessu sinni. Greiðsla í skeiðið fer fram á staðnum.
Þeir sem ætla að taka þátt í Úrtöku fyrir Allra sterkustu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband, ef margir hyggjast taka þátt á báðum stöðum verður reynt eftir fremstu getu að hliðra til.
Keppt verður í tveimur flokkum, opnum flokki og yngri flokki (barna- og unglingaflokkur / 16 ára og yngri).
Tveir eru inná vellinum í einu og þrír dómarar dæma.
Sigurlína Kristinsdóttur og Astey Art gefa glæsileg málverk sem verða gefin í lok mótaraðarinnar og verða til sýnis í Fákaseli meðan mótin standa yfir.
Skráningagjald er 4.000 krónur í opinn flokk og 2.500 krónur í yngri flokk (16 ára og yngri)
Keppt er í fimm keppnisgreinum; fjórgangi, fimmgangi, tölti, T2 og skeiði. Mótin verða fjögur talsins á tveggja vikna millibili (8. febrúar, 22. febrúar, 8. mars og 22. mars)
Skráning fer fram inná Sportfeng og þurfa greiðslur vegna skráningar að berast fyrir hádegi (kl. 12) á laugardaginn 22. mars eigi skráning að vera gild. Mikilvægt að senda kvittun á [email protected] þegar greitt er.
Eins og áður segir hefst mótið kl. 14.00 á sunnudeginum og því kjörið fyrir fjölskylduna að koma saman og eiga góðan dag í Fákaseli.
Mótið er jafnframt vetrarmót Ljúfs og verða efstu félagsmenn Ljúfs verðlaunaðir sérstaklega á hverju móti í Opnum flokki og Yngri flokki, auk þess verða samanlagðir sigurvegar Ljúfs verðlaunaðir í lok mótaraðarinnar í Barna, unglinga, ungmenna- og Opnum flokki eins og venja er.
Skráning er hafin inná Sportfeng (smella hér)
Mótið er á vegum Hestamannafélagsins Ljúfs
Komi upp vandræði vegna skráningar er hægt að senda tölvupóst á [email protected] eða hringja í síma 863-8813.
Stigakeppni Meistaramóts:
Janus Halldór Eiríksson 20
Eyrún Ýr Pálsdóttir 18
Reynir Örn Pálmason 14
Ævar Örn Guðjónsson 12
Þórdís Erla Gunnarsdóttir 12
Friðrik Þórarinsson 12
Fanney Guðrún Valsdóttir 11
Arnar Bjarki Sigurðarson 8
Elin Holst 8
Matthías Leó Matthíasson 8
Ásmundur Ernir Snorrason 7
Atli Freyr Maríönnuson 7
Edda Rún Ragnarsdóttir 7
Bjarni Sveinsson 6
Hallgrímur Birkisson 5
Helgi Þór Guðjónsson 4
Sigurður Sigurðarson 4
Sigursteinn Sumarliðason 4
Sólon Morthens 4
Stigakeppni í unglingaflokk:
Annabella R Sigurðardóttir 24
Katrín Eva Grétarsdóttir 23
Védís Huld Sigurðardóttir 18
Glódís Rún Sigurðardóttir 16
Kristófer Darri Sigurðsson 15
Stefanía Hrönn Stefánsdóttir 7
Aníta Rós Róbertsdóttir 4
Rósa Kristín Jóhannesdóttir 2
Vilborg Hrund Jónsdóttir 1
Mathilde Damgaard Jansdorf 1″
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH