Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar er ræktunarbú ársins 2022
Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar er ræktunarbú ársins 2022.
Valið stóð á milli 36 búa sem náð höfðu athyglisverðum árangri á árinu. Tilnefnd eru 12 efstu bú ársins að loknum útreikningi, í ár voru nokkur bú jöfn í tólfta sæti og eru búin því 15 í ár.
Eiðfaxi óskar þeim Bergi Jónssyni og Olil Amble til hamingju með stórglæsilegan árangur nú sem áður.
Önnur tilnefnd bú voru eftirfarandi í stafrófsröð
- Auðsholtshjáleiga, Gunnar Arnarsson, Kristbjörg Eyvindsdóttir og fjölskylda
- Austurás, Haukur Baldvinsson, Ragnhildur Loftsdóttir og fjölskylda
- Árdalur, Ómar Pétursson, Pétur Ómarsson og fjölskylda
- Fákshólar, Jakob Svavar Sigurðsson, Helga Una Björnsdóttir
- Garðshorn á Þelamörk, Agnar Þór Magnússon og Birna Tryggvadóttir Thorlacius
- Hjarðartún, Óskar Eyjólfsson, Bjarni Elvar Pétursson og Kristín Heimisdóttir, Hans Þór Hilmarson og Arnhildur Helgadóttir
- Lækjamót, Sonja Líndal Þórisdóttir, Friðrik Már Sigurðsson, Ísólfur Líndal Þórisson, Vigdís Gunnarsdóttir, Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal, Þórir Ísólfsson og Elín Rannveig Líndal
- Prestsbær, Inga og Ingar Jensen
- Rauðalækur, Guðmundur Friðrik Björgvinsson, Eva Dyröyog Kristján Gunnar Ríkharðsson
- Skagaströnd, Sveinn Ingi Grímsson, Þorlákur Sigurður Sveinsson
- Skipaskagi, Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir
- Steinnes, Magnús Jósefsson, Líney Árnadóttir, Jón Árni Magnússon og Berglind Bjarnadóttir
- Sumarliðabær 2, Birgir Már Ragnarsson og Silja Hrund Júlíusdóttir
- Þúfur, Gísli Gíslason og Mette Mannseth