Kirkjureið á sunnudag
Hin árlega kirkjureið hestafólks á höfuðborgarsvæðinu verður næsta sunnudag, 29. apríl.
Riðið verður til Seljakirkju, þar sem tekið verður á móti hestum í trygga rétt og gæslu. Guðsþjónustan hefst kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson stýrir guðsþjónustunni ásamt sr. Ólafi Jóhanni Borgþórssyni. Brokkkórinn syngur og leiðir söng undir stjórn Magnúsar Kjartanssonar. Allt er það hestafólk sem leggur hönd á plóg. Að lokinni guðsþjónustunni verður kirkjukaffi að vanda. Lagt verður af stað úr hesthúsahverfunum kl. 12:30, -í Víðidal frá skiltinu, í Gustshverfi við reiðskemmuna og Andvarafólk frá Heimsenda. Kirkjureiðin er ætluð fyrir alla fjölskylduna. Full ástæða til að taka þátt í góðum reiðtúr og njóta stundarinnar í kirkjunni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH