Kirkjureið á höfuðborgarsvæðinu
Hin árlega kirkjureið hestafólks á höfuðborgarsvæðinu verður sunnudaginn 7. maí.
Riðið verður til Seljakirkju, þar sem tekið verður á móti hestum í trygga rétt og gæslu.
Guðsþjónustan hefst kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson predikar.
Brokkkórinn syngur og leiðir söng undir stjórn Magnúsar Kjartanssonar.
Allt er það hestafólk sem leggur hönd á plóg.
Að lokinni guðsþjónustunni verður kirkjukaffi að vanda.
Lagt verður af stað úr hesthúsahverfunum kl. 12:30, -í Víðidal frá skiltinu, í Gustshverfi við reiðskemmuna og Andvarafólk frá Heimsenda.
Kirkjureiðin er ætluð fyrir alla fjölskylduna. Full ástæða til að taka þátt í góðum reiðtúr og njóta stundarinnar í kirkjunni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH