Knapamerkja og prófdómaranámskeið

  • 7. nóvember 2012
  • Fréttir
Knapamerkja og prófdómaranámskeið

Áminning um Knapamerkja og prófdómaranámskeið. 

Sunnudaginn 18 nóvember verður boðið upp á fræðsludag og námskeið um Knapamerkin auk þess sem prófdómurum verður boðið upp á að uppfæra dómararéttindi sín og nýjum að spreyta sig á að taka próf. Fyrri hluti námskeiðsins verður öllum opinn sem áhuga hafa á að fræðast um Knapamerkin eða ætla sér að bjóða upp á Knapamerkjanámskeið í vetur. Seinni hluti námskeiðsins er einungis hugsaður fyrir þá aðila (reiðkennara) sem hyggjast taka prófdómarapróf. 

Ath. Þeir sem eru með prófdómararéttindi verða mæta á þetta námskeið og taka prófdómaraprófið til að viðhalda núverandi réttindum. 

Skráningu í prófdómarahluta námskeiðsins lýkur föstudagskvöldið 9 nóvember.

Staðsetning – Fáksheimilið og Reiðhöllin í Víðidal

Dagsetning – 18 nóvember frá klukkan 11 til 18

Verð – Það er frítt á fyrri hluta námskeiðsins en verð fyrir þá sem mæta á prófdómaranámskeið er 20.000 krónur og innifalið í því er kaffi og snarl yfir daginn auk próftökugjalds.

Dagskrá (með fyrirvara um smávægilegar breytingar)

Klukkan: 10:30 – 11:45 Kynning Helga Thoroddsen

Klukkan: 11:00 – 11:30 Erindi frá reiðkennara

Klukkan: 11:30 – 12:00 Erindi frá nemendum

Klukkan: 12:00 – 12: 15 Fyrirspurnir og umræður 

Þessi hluti námskeiðsins er öllum opinn sem áhuga hafa á að kynna sér Knapamerkin og leita upplýsinga um þau.

Matarhlé

Klukkan 13:00 – 13:30

Farið yfir helstu verkefni, áherslur í prófum og hvað er framundan.

Umræður

Klukkan 13: 40 – 15:30 

Farið yfir helstu áhersluatriði í prófum og æfð prófdæming af myndböndum.

Kaffihlé

Klukkan 16:00 – 18:00

Prófdómarapróf 

Þessi hluti námskeiðsins er opinn reiðkennurum sem hyggjast kenna Knapamerkjanámskeið og prófdómurum sem  vilja uppfæra prófdómararéttindi sín. Dæmd verða 2 próf á hverju stigi Knapamerkjanna og prófgögnum skilað til prófdómara. 

 

segir í tilkynningu frá Helgu Thoroddsen

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link