Knapar hvattir til að skrá sig

  • 2. desember 2015
  • Fréttir
Alþjóðasamtök knapa.

Heimasíða Alþjóðasamtaka knapa (IRG) hefur verið opnuð en þetta er nýtt félag sem stofnað var nú í haust. Eru allir þeir knapar sem eru með skráðan árangur á world ranking listum hvattir til að skrá sig og gerast meðlimir. Stofnun IRG þjónar þeim tilgangi að knapar hafi sína rödd innan hestaíþrótta og nýta þá þekkingu og reynslu á uppbyggilegan hátt

Stofnfundur Alþjóðasamtaka knapa (IRG – International Riders Group) var haldinn þann 1. október 2015. Að fundinum stóðu nokkrir aðilar innan Íslandshestaheimsins og var settur saman bráðabriðgðavinnuhópur þannig skipaður:

Marie Lichtenegger, Irene Reber, Styrmir Árnason, Hinrik Bragason, Johannes Hoyos,  Hulda Gústafsdóttir, Piet Hoyos, Uli Reber og Hans Pfaffen.

Skráning og nánari upplýsingar um Alþjóðasamtök knapa má finna á heimasíðunni irg.jetzt

Allir knapar eru hvattir til að skrá sig. Sameinaðir geta knapar haft áhrif.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link