Knapi ársins kjörinn á laugardaginn

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Sigurbjörn Bárðarson (58) líklegastur

Aðeins mannlegur máttur getur aftrað því að hinn 58 ára Sigurbjörn Bárðarson verði kjörinn knapi ársins og skeiðknapi ársins 2010. Allar forsendur byggðar á árangri mæla með honum. Fyrir það fyrsta setti hann Íslandsmet í 150 m skeiði á rafræna klukku, 13,98 sekúndur, sem hefur verið staðfest af LH. Hann er sigurvegari Meistaradeildar VÍS 2010. Hann vann þrjá Íslandsmeistaratitla á Íslandsmóti 2010 og var í A úrslitum í tölti og fimmgangi. Hann varð efstur í tölti og A flokki á Meistaramóti Andvara. Enginn annar knapar státar af jafnmörgum frækilegum afrekum á keppnistímabilinu. En knapi ársins hefur áður komið á óvart og það er spennandi að sjá hvað kemur upp úr hattinum á Uppskeruhátíð hestamanna sem haldin verður á Broadway á laugardaginn kemur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link