Kolgrímur Grímsson hæst dæmda hrossið í Svíþjóð
Í Svíþjóð voru haldnar þrjár kynbótasýningar, ein í Romme og tvær á Axevalla. Sýnd voru 134 hross frá Svíþjóð, 115 í fullnaðardóm og 19 einungis í sköpulagsdóm. Flest voru sýnd í Svíþjóð en tvö voru sýndi í Noregi og Hollandi, níu í Danmörku og sex í Þýskalandi. Af 115 hrossum sem voru sýnd í fullnaðardóm hlutu 26 fyrstu verðlaun.
Meðalhæð hrossanna sem hlutu fullnaðardóm er 141,4 cm. Meðaltal fyrir sköpulag er 8,04, hæfileika er 7,62 og meðaltal aðaleinkunnar er 7,76. Meðalaldur hrossanna var 6,77 ár.
Tvö hæst dæmdu sænsk fæddu hrossin eru bæði frá Gunvarbyn en það eru þeir Kolgrímur Grímsson og Náttfari. Hæstur er Kolgrímur Grímsson från Gunvarbyn en hann stóð einnig efstur í flokki 7 vetra og eldri stóðhesta á Heimsmeistarmótinu í sumar. Kolgrímur Grímsson hlaut 8,63 fyrir sköpulag og 8,75 fyrir hæfileika sem gerir 8,71 í aðaleinkunn. Kolgrímur Grímsson er undan Grím frá Efsta-Seli og Kolskör från Kolungens Gård 2. Ræktandi er Þorleifur Sigfússon en eigandi er Stald Gavnholt. Sýnandi Kolgríms Grímssonar var Agnar Snorri Stefánsson.
Hæsta hryssan er Díva från Ådalen en hún hlaut fyrir sköpulag 8,74 og fyrir hæfileika 8,38 sem gerir 8,51 í aðaleinkunn. Erlingur Erlingsson sýndi Dívu en hún er sjö vetra og undan Divar från Lindnäs og Rakel från Hyndevad. Ræktendur eru Sigfús Brynjar Sigfússon og Josefine Denami og eigandi er Susanne Larsson.
Tíu hæst dæmdu hrossin ræktuð í Svíþjóð
| Fæðingarnúner | Nafn | Uppruni í þgf. |
S. |
H. |
Ae. |
| SE2014106695 | Kolgrímur Grímsson | Gunvarbyn | 8.63 | 8.75 | 8.71 |
| SE2014106693 | Náttfari | Gunvarbyn | 8.9 | 8.47 | 8.62 |
| SE2016271032 | Díva | Ådalen | 8.74 | 8.38 | 8.51 |
| SE2015170075 | Ramses | Snäcksjön | 8.34 | 8.4 | 8.38 |
| SE2016170690 | Heimir | Solhäll | 8.54 | 8.18 | 8.31 |
| SE2017223903 | Karólína | Backome | 7.89 | 8.45 | 8.26 |
| SE2017122918 | Merkúr | Smedjan | 8.29 | 8.25 | 8.26 |
| SE2014206350 | Elfa | Sundabakka | 8.29 | 8.21 | 8.24 |
| SE2017201899 | Alma | SundsbergKval | 8.42 | 8.04 | 8.17 |
| SE2015211999 | Gambra | Vidö Gård | 7.96 | 8.28 | 8.17 |
| SE2018122021 | Mótor | Smedjan | 8.33 | 8.08 | 8.17 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH