Kolka frá Hákoti efst á Hellu
Kolka frá Hákoti stendur nú efst á Gaddstaðaflötum á Hellu en Hrefna María Ómarsdóttir sýndi Kolku í gær. Kolka hlaut 8,66 í aðaleinkunn, 8,81 fyrir kosti og 8,44 fyrir sköpulag. Kolka var efst í flokki 5.vetra hryssna á Landsmótinu 2011 þar sem hún hlaut 8,51 í aðaleinkunn og í fyrra var hún hæst vetra 6.vetra hryssa á landinu með 8,69 í aðaleinkunn.
Kolka hlaut 9,0 fyrir skeið, brokk og fegurð í reið og 9,5 fyrir vilja og geðslag. Það verður gaman að sjá hvað þær stöllur gera á yfirlitinu en Kolka hefur áður farið í 9,0 tölt.
IS2006286428 Kolka frá Hákoti
Örmerki: 968000001802023
Litur: 2700 Brúnn/dökk/sv. einlitt
Ræktandi: Halldóra Hafsteinsdóttir, Markús Ársælsson
Eigandi: Hrefna María Ómarsdóttir, Rósa Valdimarsdóttir
F.: IS2002186435 Íkon frá Hákoti
Ff.: IS1996187336 Töfri frá Kjartansstöðum
Fm.: IS1994286104 Bella frá Kirkjubæ
M.: IS1995286428 Frá frá Hákoti
Mf.: IS1989184551 Þorri frá Þúfu í Landeyjum
Mm.: IS1990286414 Feykja frá Hala
Mál (cm): 143 – 136 – 63 – 143 – 28,0 – 18,0
Hófa mál: V.fr.: 8,3 – V.a.: 8,2
Sköpulag: 8,0 – 9,0 – 9,5 – 9,0 – 7,0 – 8,5 – 8,0 – 8,0 = 8,44
Hæfileikar: 8,5 – 9,0 – 9,0 – 8,5 – 9,5 – 9,0 – 7,5 = 8,81
Aðaleinkunn: 8,66
Hægt tölt: 8,5 Hægt stökk: 7,5
Sýnandi: Hrefna María Ómarsdóttir