Kolka og Hrefna María slá í gegn
Hrefna María Ómarsdóttir sýndi Kolku frá Hákoti nú í dag á Hellu og hlutu þær rosa flottan dóm eða 8,69 í aðaleinkunn. Kolka hlaut 8,44 fyrir sköpulag þar af 9,5 fyrir bak og lend og 9,0 fyrir samræmi og háls, herðar og bóga. Fyrir hæfileika hlaut Kolka hvorki meira né minna en 8,85 en hún hlaut 9,5 fyrir vilja og geðslag og 9,0 fyrir tölt, brokk og fegurð í reið. Enginn smá dómur á þessari dömu!. Kolka er í eigu Hrefnu Maríu og Rósu Valdimarsdóttur. Kolka er undan Íkoni frá Hákoti og Frá frá Hákoti.
Til gamans má bæta því við að Kolka stóð efst á Landsmótinu í fyrra í hópi 5 vetra hryssna og er sem stendur efst í flokki 6 vetra hryssna fyrir þetta Landsmót. Spennandi verður að sjá hvort Kolka muni standa efst eftir Landsmótið í Fáki í sumar.
Meðfylgjandi er dómur Kolku:
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH