Kompudagur í Reiðhöllinni !
Eins manns rusl er annars manns dýrgripur
Kompudagur verður haldinn í Reiðhöllinni í Víðidal laugardaginn 4.des. n.k. frá kl. 11:00 – 17:00.
Nú er um að gera að losa úr skápum og geymslu fatnað, leirtau, bækur, listmuni og hvað annað sem hægt er að koma í verð.
Prútta, selja eða gera góð kaup. Panta þarf borð fyrir 1.des. n.k. – stærð 180 x 80 og leigan er kr. 2.000,- fyrir hvert borð.
Greiða þarf þegar pöntun fer fram.
Borðapantanir eru í síma 696-8445
Brokkkórinn kemur okkur í jólagírinn með því að syngja nokkur lög.
Veitingasala á staðnum
Hlökkum til að sjá ykkur,
undirbúningsnefndin
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH