Konráð Valur og Kjarkur bættu hallarmet á Svaðastöðum

  • 14. maí 2020
  • Fréttir

Konráð Valur og Kjarkur mynd: Bjarney Anna

Lokakvöld Meistaradeildar KS í hestaíþróttum fór fram í gær þegar keppt var í tölti og flugskeiði í gegnum höllina. Í skeiðkeppnina var mikið skráð af vel þekktum og fljótum skeiðhestum enda var keppnin spennandi og hörku tímar litu dagsins ljós, sem boðar gott fyrir komandi tímabil utandyra.

Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II sigruðu flugskeiðið en þeir flugu í gegnum höllina á tímanum 4,62!

Þeir slógu því hallarmet í Svaðastaðahöllinni en metið áttu Sigurður Sigurðarson og Drífa frá Hafsteinsstöðum (4,69).

Lið Íbishóls sigraði liðakeppni í flugskeiði enda voru þau Sigursteinn Sumarliðason, sem var leynigestur, og Freyja Amble í tveimur af þremur efstu sætunum.

Niðurstöður Flugskeiðs

Sæti Knapi Hross Tími
1 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 4,62
2 Sigursteinn Sumarliðason Krókus frá Dalbæ 4,74
3 Freyja Amble Gísladóttir Dalvík frá Dalvík 4,81
4 Þórarinn Eymundsson Gullbrá frá Lóni 4,83
5 Ástríður Magnúsdóttir Brattur frá Tóftum 5,04
6 Finnur Jóhannesson Tinna Svört frá Glæsibæ 5,05
7 Vignir Sigurðsson Hrappur frá Sauðárkróki 5,09
8 Elvar Einarsson Segull frá Halldórsstöðum 5,09
9 Mette Mannseth Vívaldi frá Torfunesi 5,11
10 Guðmar Freyr Magnússon Brimar frá Varmadal 5,14
11 Þorsteinn Björn Einarsson Fossbrekka frá Brekkum III 5,20
12 Hannes Brynjar Sigurgeirson Pláneta frá Varmalandi 5,28
13 Bjarni Jónasson Randver frá Þóroddsstöðum 5,29
14 Jóhann Magnússon Fröken frá Bessastöðum 5,32
15 Bergrún Ingólfsdóttir Abel frá Sveinsstöðum 5,35
16 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir Óskar frá Draflastöðum 5,38
17 Elvar Logi Friðriksson Surtsey frá Fornusöndum 5,41
18 Randi Holaker Bragi frá Skáney 5,46
19 Líney María Hjálmarsdóttir Skutla frá Akranesi 5,48
20 Finnbogi Bjarnason Dama frá Hekluflötum 5,49
21 Gísli Gíslason Trymbill frá Stóra-Ási 5,52
22 Artemisia Bertus Vefur frá Akureyri 5,66
23 Sigrún Rós Helgadóttir Júdit frá Fornhaga II 6,02
24 Svavar Örn Hreiðarsson Skreppa frá Hólshúsum 0,00

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link