Skeiðfélagið Konráð vann allar greinarnar

  • 8. júní 2023
  • Fréttir
Niðurstöður frá öðrum Skeiðleikum Eques, Líflands og Skeiðfélagsins.

Aðrir skeiðleikar Eques, Líflands og Skeiðfélagsins fóru fram í gær á Brávöllum á Selfossi. Aðstæður voru ekkert frábærar á svæðinu en það var mótvindur og smá rigning.

Konráð Valur Sveinsson vann allar greinarnar en 250 m. skeiðið sigraði hann á Tangó frá Litla-Garði og 150m. og 100m. skeiðið vann hann á Kjark frá Árbæjarhjáleigu II.

Þar með hefur Konráð Valur tekið góða forystu í einstaklingskeppninni um farandbikarinn Öderinn sem gefinn er af Gunnari Arnarssyni og Kristbjörgu Eyvindsdóttur til minningar um Einar Öder Magnússon.

Næstu skeiðleikar verða haldnir 19.júlí á Brávöllum.

Skeið 250m P1
Sæti Knapi Hross Tími
1 Konráð Valur Sveinsson Tangó frá Litla-Garði 23,18
2 Jóhann Kristinn Ragnarsson Þórvör frá Lækjarbotnum 23,23
3 Þorgeir Ólafsson Rangá frá Torfunesi 23,48
4 Árni Sigfús Birgisson Dimma frá Skíðbakka I 24,22

Skeið 150m P3
Sæti Knapi Hross Tími
1 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 14,50
2 Þórarinn Ragnarsson Bína frá Vatnsholti 15,03
3 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk 15,09
4 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Óskastjarna frá Fitjum 15,20
5 Ólafur Örn Þórðarson Lækur frá Skák 15,54
6 Þráinn Ragnarsson Blundur frá Skrúð 15,55
7 Glódís Rún Sigurðardóttir Þröm frá Þóroddsstöðum 15,68
8 Kjartan Ólafsson Hilmar frá Flekkudal 15,99
9 Erlendur Ari Óskarsson Druna frá Fornusöndum 16,61
10 Herdís Björg Jóhannsdóttir Urla frá Pulu 17,56
11-13 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sæla frá Hemlu II 0,00
11-13 Sigurður Halldórsson Gammur frá Efri-Þverá 0,00
11-13 Ingi Björn Leifsson Gná frá Selfossi 0,00

Flugskeið 100m P2
Sæti Knapi Hross Tími
1 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 7,49
2 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sjóður frá Þóreyjarnúpi 7,60
3 Konráð Valur Sveinsson Tangó frá Litla-Garði 7,69
4 Kristófer Darri Sigurðsson Gnúpur frá Dallandi 7,72
5 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir Straumur frá Hríshóli 1 7,78
6 Þorgeir Ólafsson Hátíð frá Sumarliðabæ 2 7,94
7 Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir Snædís frá Kolsholti 3 7,95
8 Þórarinn Ragnarsson Freyr frá Hraunbæ 8,02
9 Þorgeir Ólafsson Rangá frá Torfunesi 8,05
10 Glódís Rún Sigurðardóttir Glotti frá Þóroddsstöðum 8,08
11 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk 8,15
12 Erlendur Ari Óskarsson Dama frá Hekluflötum 8,20
13 Ólafur Andri Guðmundsson Gloría frá Engjavatni 8,70
14 Hafþór Hreiðar Birgisson Vilma frá Melbakka 9,36
15 Katrín Ósk Kristjánsdóttir Darri frá Dimmuborg 10,44
16 Glódís Rún Sigurðardóttir Drottning frá Þóroddsstöðum 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link