Kristall frá Auðsholtshjáleigu

  • 11. maí 2011
  • Fréttir
Spennandi foli undan Tígli frá Gýgjarhóli

Kristall frá Auðsholtshjáleigu er annar þeirra stóðhesta sem báru af á vorsýningu kynbótahrossa á Selfossi. Spennandi foli undan Tígli frá Gýgjarhóli og  Framtíð frá Auðsholtshjáleigu, Hektorsdóttur frá Akureyri. Framtíð hefur þegar skipað sér í hóp betri ræktunarhryssna, á fjögur dæmd afkvæmi og þrjú með fyrstu verðlaun, þar á meðal Kjarna frá Auðsholtshjáleigu, sem stóð efstur í 6 vetra flokki stóðhesta á HM2009 í Sviss. Frábær töltari. Kristall er léttbyggður og flottur foli, á margan hátt mjög líkur Kjarna bróður sínum. Hann er með 9,0 fyrir framhluta, tölt, stökk, vilja og fegurð. Rúmur og hágengur á tölti. Fallega jarpur. Eigandi og ræktandi Eyvindur Hrannar Gunnarsson.

Tígull frá Gýgjarhóli hefur ekki fengið mikla notkun, þrátt fyrir góðan kynbótadóm. Aðeins fimmtán afkvæmi eru með fullnaðardóm, en Tígull er nú 15 vetra. Hann hefur þó gefið nokkra stóðhesta með fínar einkunnir, þar á meðal Vídalín frá Hamrahóli (8,40), sem var seldur til Noregs.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link