Kvennatölt Spretts

  • 10. apríl 2023
  • Tilkynning
Skráning hafin á mótið í gegnum Sportfeng

„Búið er að opna fyrir skráningu í Kvennatölt Spretts og Mercedes-Benz sem fer fram í Samskipahöllinni í Spretti laugardaginn 22.apríl

Nánari upplýsingar um flokkaskiptingu og reglur er að finna á viðburði á Facebook undir nafninu Kvennatölt Spretts og Mercedes-Benz 2023 Endilega meldið ykkur inn á viðburðinn til að fylgjast með upplýsingum. Skráningargjald er kr. 6000 kr per skráningu og fer skráning fram á https://skraning.sportfengur.com/

ATH aldurstakmark er 18 ár
Ath. þær konur sem ætla að skrá í T7 4.flokk-byrjendur skrá sig í flokk sem heitir Fullorðinsflokkur inn í Sportfeng. Skráningu líkur þriðjudaginn 18.apríl. Þær sem vilja fá að skrá sig eftir að skráningu lýkur verða að borga 5000 kr aukalega. Konur eru hvattar til að skrá sem fyrst, en dregið verður úr fyrstu 50 og fyrstu 100 skráningunum þar sem heppnar konur hljóta flotta vinninga.

Ef einhver lendir í vandræðum með skráningu þá viljum við fá skilaboð á netfangið [email protected] eða að þið hringið í 6952391.

Boðið verður upp á æfingartíma í Samskipahöllinni þriðjudaginn 18.apríl frá kl.18:00 – 22:00 og fimmtudaginn 20.apríl. frá kl.16:00 – 20:00

Stefnt er á að mótið hefjist kl. 10:00, með forkeppni og mótslok verði um kl. 19:00“

Kvennatöltsnefnd Spretts

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link