Kvennatölt Spretts
Undirbúningur fyrir Kvennatölt Spretts stendur nú sem hæst og stefnir í feiknaflott mót. Verðlaunin eru ekki af verri endanum, m.a. hestaferðir, flug með WOW Air, glæsilegir farandgripir, eignargripir o.m.fl. Veitt verða verðlaun fyrir glæsilegasta parið í öllum flokkum og í því samhengi verður litið til snyrtimennsku manns og hests, heildarútlits og samspils.
Umgjörð mótsins verður öll hin veglegasta, fimm reyndir dómarar dæma og markmiðið er að halda sterkt mót í góðri stemmingu.
Skráning hefst á föstudaginn kemur, 4. apríl og stendur til og með 8. apríl næstkomandi. Skráningargjald er kr. 4.500 á hest og má skrá fleiri en einn hest til þátttöku, en komi knapi fleiri en einum hesti í úrslit skal hann velja einn hest til úrslitakeppni. Aldurstakmark er 18 ár (miðast við ungmennaflokkinn).
Skráning fer fram á sportfengur.com undir „Skráningarkerfi“ og þar undir á svo að velja „Mót.“ Þaðan á kerfið að leiða fólk áfram. Boðið er upp á fjóra keppnisflokka á mótinu:
- Byrjendaflokk (skráður sem Annað í Sportfeng)
- Minna vanar
- Meira vanar
- Opinn flokk
Hafi knapi sigrað einhvern flokk í Kvennatöltinu áður ber viðkomandi að færa sig upp um flokk. Það sama á við ef knapi hefur þrisvar eða oftar komist í A-úrslit í einhverjum flokki ber viðkomandi að færa sig upp um flokk. Knapar eru hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka.
Í byrjendaflokki er sýnt hægt tölt og svo tölt á frjálsum hraða, ekkert snúið við. Í hinum flokkunum þremur er sýnt hægt tölt, snúið við, sýnt tölt með hraðabreytingum og svo greitt tölt. Tveir til þrír knapar inni á vellinum í einu og þulur stýrir. Lögð er áhersla á góða og vinalega stemmingu og ekkert stress þannig að keppendur njóti sín sem allra best.
Afskráningar, breytingar og fyrirspurnir skulu berast á netfangið [email protected]
Kvennatöltið fer fram í hinni glæsilegu reiðhöll Spretts á Kjóavöllum laugardaginn 12. apríl nk. Forkeppni hefst að morgni og er stefnt að því að ljúka mótinu um kl. 18. Veitingasala verður á staðnum og vel fer um áhorfendur á pöllunum svo hestamenn eru hvattir til að mæta og fylgjast með flottu móti.
Við bendum á að stofnaður hefur verið viðburður á Facebook fyrir Kvennatöltið undir heitinu „Kvennatölt Spretts“ og allir þeir sem melda sig þar inn fara í pott sem dregið verður úr á mótinu. Í verðlaun eru tveir miðar á hina glæsilegu stóðhestaveislu í Ölfushöllinni sem fram fer að kvöldi sama dags, 12. apríl. Endilega skráið ykkur þar inn og fylgist með fréttum af mótinu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH