Kynbótasýning á Akureyri 6.-10. júní
Kynbótasýning verður haldin á Akureyri daganna 6. – 10. júní nk. Tekið er við skráningum í Búgarði, í síma 460-4477 eða á netfangið [email protected].
„Byrjað er að taka við skráningum en síðasti skráningardagur og greiðsludagur er miðvikudagur 1. júní. Gefa þarf upp einstaklingsnúmer við skráningu. Sýningargjald er kr.15.000.- fyrir fulldæmt hross en kr. 10.500 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm eða hæfileikdóm. Hægt er að greiða í Búgarði. Einnig má leggja inn á reikning 302-13-200861, kt. 490169-1729, og senda kvittun á netfangið [email protected] skýring: nafn á hrossi og fæðinganúmer. Munið að kynna ykkur reglur um einstaklingsmerkingar, járningar, blóðsýni, dna-sýni og spattmyndir,“ segir í tilkynningu frá Hrossaræktarsamtökum Eyfirðinga og Þingeyinga.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH