Kynbótasýningar í fullum gangi á Hvammstanga

  • 25. maí 2011
  • Fréttir
Kynbótasýningar í fullum gangi á Hvammstanga

Kynbótasýningar hófust á félagssvæði hestamannafélagsins Þyts á  Hvammstanga í gær og munu þær standa yfir út vikunna. Alls eru 88 hross skráð til dóms.

Tvær fimm vetra hryssur hafa hlotið landsmótslágmörk. Hæstu einkunn fram að þessu hefur hlotið Rökkvadóttirinn Heiðdís frá Hólabaki, en hún fékk 8,20 í aðaleinkunn, 8,24 fyrir sköpulag og 8,17 fyrir hæfileika. Þá hlaut Hrefna frá Vatni aðaleinkunnina 8,18, fyrir sköpulag 8,35 og fyrir hæfileika 8,07. Hrefna er Álfsdóttir en móðir hennar er Tekla frá Vatni.

Þá hlaut fjögurra vetra stóðhestur sem ber nokkuð reffilegt nafn, Svikahrappur frá Borgarnesi,  8,01 í aðaleinkunn og er þar með komin með farmiða á Landsmót. Hann er undan Glym frá Innri-Skeljabrekku og Tjáningu frá Engihlíð.

Yfirlitssýning efstu hrossa fer fram á föstudag.

Meðfylgjandi eru dómar Svikahrapps, Heiðdísar og Hrefnu.

 

IS2007136679 Svikahrappur frá Borgarnesi

Örmerki: 208224000206731

Litur: 2100 Brúnn/gló- einlitt

Ræktandi: Gunnar Hlíðdal Gunnarsson

Eigandi: Finnur Kristjánsson, Gunnar Hlíðdal Gunnarsson

F.: IS2001135613 Glymur frá Innri-Skeljabrekku

Ff.: IS1998135614 Gaukur frá Innri-Skeljabrekku

Fm.: IS1991236230 Þyrla frá Norðtungu

M.: IS2000238386 Tjáning frá Engihlíð

Mf.: IS1997138391 Ýlir frá Engihlíð

Mm.: IS1989238387 Kolþerna frá Engihlíð

FORSKOÐUNARDÓMUR

Héraðssýning á Hvammstanga

Mál (cm): 137 – 127 – 130 – 61 – 139 – 36 – 41 – 39 – 6,3 – 27,0 – 17,0

Hófa mál: V.fr.: 8,5 – V.a.: 7,7

Sköpulag: 7,0 – 8,5 – 8,5 – 8,0 – 7,0 – 7,0 – 8,0 – 9,0 = 7,90

Hæfileikar: 8,0 – 8,0 – 8,0 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,0 = 8,08

Aðaleinkunn: 8,01      Hægt tölt: 7,5      Hægt stökk: 7,5

Sýnandi: Agnar Þór Magnússon

 

IS2006256275 Heiðdís frá Hólabaki

Örmerki: 352098100009473

Litur: 1500 Rauður/milli- einlitt

Ræktandi: Björn Magnússon

Eigandi: Björn Magnússon

F.: IS1997186541 Rökkvi frá Hárlaugsstöðum

Ff.: IS1982151001 Otur frá Sauðárkróki

Fm.: IS1982286412 Snegla frá Hala

M.: IS1992256275 Dreyra frá Hólabaki

Mf.: IS1970125095 Dreyri frá Álfsnesi

Mm.: IS1982256274 Lýsa frá Hólabaki

FORSKOÐUNARDÓMUR

Héraðssýning á Hvammstanga

Mál (cm): 143 – 140 – 62 – 143 – 27,0 – 17,0

Hófa mál: V.fr.: 8,6 – V.a.: 7,8

Sköpulag: 8,5 – 8,5 – 8,5 – 9,0 – 7,5 – 7,0 – 8,0 – 8,0 = 8,24

Hæfileikar: 9,0 – 8,5 – 5,0 – 9,0 – 9,0 – 9,0 – 7,5 = 8,17

Aðaleinkunn: 8,20      Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 8,5

Sýnandi: Agnar Þór Magnússon

 

IS2006238377 Hrefna frá Vatni

Örmerki: 968000003935582

Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt

Ræktandi: Helga Halldóra Ágústsdóttir, Sigurður Hrafn Jökulsson

Eigandi: Sigurður Hrafn Jökulsson

F.: IS2002187662 Álfur frá Selfossi

Ff.: IS1986186055 Orri frá Þúfu

Fm.: IS1996287660 Álfadís frá Selfossi

M.: IS1992238377 Tekla frá Vatni

Mf.: IS1985176001 Toppur frá Eyjólfsstöðum

Mm.: IS1981287008 Harka frá Hömrum

FORSKOÐUNARDÓMUR

Héraðssýning á Hvammstanga

Mál (cm): 137 – 136 – 63 – 140 – 27,0 – 17,0

Hófa mál: V.fr.: 8,0 – V.a.: 7,5

Sköpulag: 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 9,0 – 7,0 – 8,5 – 7,5 = 8,35

Hæfileikar: 8,0 – 7,5 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,0 – 7,0 = 8,07

Aðaleinkunn: 8,18      Hægt tölt: 7,5      Hægt stökk: 8,0

Sýnandi: Agnar Þór Magnússon

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link