Kynbótasýningum frestað
Ákveðið hefur verið að fresta kynbótasýningum Landsmóts, amk. til kl. 20.00 í kvöld.
Að sögn Péturs Halldórssonar sýningarstjóra kynbótahrossa verður ákveðið þá hvert framhaldið verður. Nú er dómum 5 vetra hryssna lokið. Ekki þótti ráðlagt að hefja dóma 4 vetra hryssna í því veðri sem nú gengur yfir.
Nánar verður fjallað um framhald kynbótasýninga þegar fréttir berast.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH