Kynning á nýrri tækni í járningum

  • 12. desember 2021
  • Fréttir
Black er fyrsta og eina greiningartækið fyrir járningarmenn og dýralækna

Fyrr í mánuðinum stóð Járningamannafélag Íslands fyrir kynningu og fræðslu á nýjum búnaði sem kallast Black og er framleiddur af hollenska fyrirtækinu Werkman. Black er fyrsta og eina greiningartækið fyrir járningarmenn og dýralækna í heiminum sem gerir þér kleift að fylgjast stafrænt með hreyfi ferlum á hófum hestsins. Eiðfaxi ræddi við fjóra einstaklinga eftir kynninguna og spurði þá út í búnaðinn. 

Jonathan Nuun var í hópi þeirra sem þróaði og prófaði Black tækið en hann segir að Black muni gjörbreyta starfi járningarmanna og dýralækna. “Black gerir okkur kleift að sjá það sem við getum ekki séð með berum augum og myndavélar geta ekki tekið upp. Þaðan fær búnaðurinn líka nafn sitt en það sýnir okkur hvað við getum ekki séð í myrkrinu,” segir Jonathan en tækið gerir okkur kleift að safna öllum viðeigandi gögnum um hreyfiferla hófsins. “Tækið sýnir okkur nákvæmlega það sem við viljum fá að vita um lendingu, niðurstig, uppstig (brake over) og hreyfiferil hófsins. Þessir þættir hafa oft verið umdeilanlegir hjá járningarmönnum og dýralæknum en nú geta þeir séð nákvæma tímalínu og hreyfingar. Með þessum búnaði er hægt að mæla alls konar m.a. skreflengd og hversu lengi hesturinn er með fótinn við jörð. Allar þessar upplýsingar gera okkur síðan kleift að laga járningar til að ná fram samhverfum hreyfingum eða jöfnum skrefum,” bætir Jonathan við en hann telur sig hafa verið mjög heppinn að fá að vera með í hópnum sem var að þróa þessa tækni og fengið að kynnast hinum ýmsu hestakynjum í alls konar aðstæðum. “Þessi ferð hingað til Íslands var mjög spennandi fyrir mig en ég var spenntur að fá að kynnast íslenska hestinum og fá að mæla eitthvað af bestu hestum landsins. Við vorum ekki alveg öruggir með það hvort við myndum ná að mæla á tölti og skeiði en það gladdi okkur mikið að það virkaði,” segir Jonathan.

Black tæknin er síðan 2019 en þá var byrjað að mæla hreyfingar á framfótum en árið 2020 var farið að mæla einnig afturfætur. “Þetta tæki er tiltölulega nýtt en við höfum séð mikla aukningu á notendum og eru alltaf fleiri og fleiri járningarmenn farnir að nota þetta út um allann heim. Þetta tæki og þessir skynjarar sem við erum að sýna hér í dag eru lokaútgáfan. Þetta er það nýjasta í tækninni í dag og þó það verði gerðar einhverjar uppfærslur og tæknin þróuð áfram þá verða þessir skynjarar áfram notaðir svo þú munt ekki þurfa að kaupa nýja. Þú einfaldlega halar niður uppfærslunni gegnum netið,” segir Jonathan en skynjararnir eru líka mjög öflugir og þola margt enda gerðir til að þola mikið álag og hita þar sem þeir eru staðsettir á hófum hestanna.

Erlendur Árnason, járningarmaður, var á kynningunni og þótti þessi nýja tækni spennandi. “Mér líst vel á þetta og áhugavert að sjá hvað er hægt að mæla með þessu. Ég held þetta sé mjög hjálplegt til að sjá skreflengdina og hvernig hestarnir eru að lenda en að geta mælt hvar þeir lenda hvort það sé á hæl, tá eða á hliðinni getur hjálpað okkur mikið,” segir Erlendur sem er spenntur fyrir að kynna sér þennan búnað nánar og læra á hann

Geert A.K. Cornelis, formaður Járningamannafélags Íslands, er sá fyrsti til að fá tækið í hendurnar hér á Íslandi og bíður spenntur eftir því að byrja nota það. “Black sýnir okkur hluti sem við getum ekki séð með berum augum en þetta er eins og göngugreining á manneskju nema bara fyrir hestinn. Tækið mun hjálpa okkur að greina vandamálið og geta síðan lagfært það í kjölfarið,” segir Geert en hann segir alla sem hafa áhuga mega endilega hafa samband við sig en mælingin er gerð tvisvar, fyrir og eftir járningu.

Marteinn starfar hjá Ó. Johnson og Kaaber sem er m.a. umboðsaðili fyrir Werkmann hér á landi. “Ég held að búnaðurinn muni byrja í höndunum á fáum en síðan eigi þetta eftir að þróast mjög hratt og fleiri og fleiri munu bjóða upp á þessar mælingar. Ég held að við séum öll í hestamennsku út af gríðarlegum áhuga og ég sé þetta þannig fyrir mér að þú vilt vita meir og meir til að geta bætt hestinn á öllum gangi. Black mun einfaldlega hjálpa þér við það. Ef þú ætlar að ná hámarks árangri þá verður þú að vera með þessar mælingar,” segir Marteinn 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link