Lady markar upphaf ræktunarinnar

  • 19. desember 2021
  • Fréttir
Hrossabændur teknir tali - Efsta-Sel

 

Nú þegar líða fer að jólum ætlar Eiðfaxi að stytta okkur stundirnar og taka nokkra ræktendur landsins á tali sem eru í óðaönn að undirbúa komandi tímabil. Næsta hrossaræktarbú sem við kynnum til leiks er Efsta-Sel.

 

Hrossaræktin i Efsta-Seli hófst með hryssunni Lady frá Neðra-Seli en það eru þeir Daníel Jónsson og Hilmar Sæmundsson sem eru bakvið ræktunina. Búið hefur hlotið fimm tilnefningar til ræktunarbú ársins og einu sinni verið útnefnt ræktunarbú ársins en það var árið 2017. “Með stóðhestum þá eigum við svona 30 hross samanlagt. Á húsi núna erum við með sjö hross frá okkur fyrir utan einn stóðhest sem er hjá Jakobi og Helgu Unu á Fákshólum,” segir Daníel en Hilmar og Daníel hófu sitt samstarf árið 2004. “Lady var byrjunin á þessu ég var búinn að vera eitthvað að brasa í ræktun áður en ekki með nógu góðar merar,” bætir Daníel við.

Hafa verið óheppnir með fyljun síðustu tvö ár

Þeir félagar eru með átta hryssur í ræktun en hafa verið óheppnir undanfarin tvö ár með fyljun. “Síðustu tvö ár höfum við verið að fá of fátt en við erum búnir að vera glíma við fósturlát og vesen. Við fáum fjögur folöld næsta sumar en við fengum tvö folöld í sumar. Hryssurnar sem við erum að nota eru tvær heiðursverðlauna hryssur þær Lady (8,39) og Ópera frá Gýgjarhóli (8,22). Sara frá Horni (8,13) en hún er móðir Gríms frá Efsta-Seli sem hefur verið að gera sig vel sem ræktunarhestur, Fía frá Efsta-Seli (8,49) en ég hef mjög miklar mætur á þessari hryssu og held hún eigi eftir að gefa mikið af góðum hrossum, mikið vökur og ganghrein hryssa. Síðan eru það hryssur undan Lady sem hafa verið að koma inn í ræktunina; Lukka frá Efsta-Seli (8,54), Lóa frá Efsta-Seli (8,35) og List frá Efsta-Seli (8,30). Við fáum annað hvert folald undan Höllu frá Flekkudal (8,57) en hún er undan Sæ frá Bakkakoti og Pyttlu frá Flekkudal. Við héldum líka Kötlu frá Efsta-Dal (8,10) í sumar en hún fór undir Hnokka frá Eylandi,” segir Daníel en undir hvaða hesta fóru þessar hryssur? “Héldum undir Hnokka, Stála frá Kjarri, Álfaklett frá Syðri-Gegnishólum eða við fáum undan þessum hestum. Héldum undir fleiri en þær hryssur héldu ekki,” segir Daníel en þær Lukka, Fía, Lóa og List voru allar geldar eftir sumarið og tók Daníel þær á hús nú í vetur en stefnt er á að vera með ræktunarbússýningu frá Efsta-Seli á næsta Landsmóti.

Járnaði ræktunarhryssurnar

“Ég er með margt spennandi inni í vetur en ég er með hryssu undan Óperu og Álfakletti sem lofar mjög góðu. Hún er gang létt, sportlétt, áhugasöm, flott. Ég held hún verði góð. Ef hún gerir sig eitthvað stefni ég á að eiga hana,” segir Daníel sem er einnig með Skagadóttir og Ómsdóttir undan Óperu sem eru mjög álitlegar hryssur. “Síðan er ég með nokkrar ræktunarhryssur inni sem héldu ekki í sumar og er Halla frá Flekkudal ein af þeim. Ég er líka með Hrund frá Efsta-Seli á járnum en hún er undan Spá frá Eystra-Fróðholti og Hrafn frá Efri-Rauðalæk,” bætir hann við en blaðamaður tekur eftir því að hann er ekki með mikið af stóðhestum frá búinu. “Ég er mjög duglegur að gelda. Set markmið þannig að já ég vil vera frekar afgerandi sannfærður ef ég á að halda þessu gröðu. Við seldum Lótus frá Efsta-Seli í haust en hann er farin í Fákshóla í þjálfun. Við eigum líka tvo fola á fjórða vetur en þeir eru annars staðar. Það verður gaman að sjá þá ef ég fæ þá einhvern tíman afhenta,” bætir Daníel við en svo er hann einnig með Glampa frá Kjarrhólum á járnum sem hefur verið vinsæll til undaneldis undanfarin ár.

Sérstakt ræktunarár

Daníel Jónsson hefur verið einn af okkar fremstu knöpum þegar kemur að kynbótabrautinni en hann hefur verið útnefndur kynbótaknapi ársins fjórum sinnum. “Ég sýndi einstaklega lítið í ár en það gekk ágætlega. Oft sýnt meira en ég kem sterkur inn á næsta ári. Ég held líka að við Efsta-Sel komi sterkt til leiks í vor ef allt tekst til og þróunin verði áfram góð,” segir Daníel en aðspurður út í dómstörfin segir hann litla teygni hafa verið og of mikill munur á milli sýninga. “Heilt yfir var það kannski ágætt. Reyndar oft á tíðum skildi ég ekki alveg tölurnar og það var engin teygni í skalanum. Alltof mikill munur á milli sýninga en það kom bersýnilega í ljós t.d. Á seinni sýningunni á Hellu þegar það voru miklar hækkanir á áður sýndum hrossum sem ég hef enga skýringu á. Kannski voru þau bara betri?,” segir Daníel og heldur áfram. “Það var engin teygni í þessu. Efstu hrossin voru vissulega góð og fengu vel en það var samt ekkert afgerandi. Ég hefði viljað sjá meira af spennandi stóðhestum. Meiri afgerandi hross en það var engin stjarna. Saknaði þess að sjá hest sem að greip mig sem hrossaræktanda. Ræktunarárið var svolítið sérstakt.”

Ekki er hægt að taka viðtal við Daníel nema spyrja hann útí þá Apollo frá Haukholtum og Glampa frá Kjarrhólum og hver framtíðaráformin séu. “Við seldum Apollo í hestu en Vilborg Smáradóttir keypti hann. Einstaklega góð og geðsleg manneskja sem ætlar sér góða hluti með hann. Ég hef mikla trú á honum sem kynbótahesti en ég ætla að minnsta kosti að nota hann eitthvað meira. Við eigum Glampa ennþá og hann er ekki til sölu. Hann verður hér áfram en hann fékk mikið af hryssum í sumar. Hann hefur margt sem ég er að leita eftir og ég ætla að láta það ráðast hvert við stefnum. Trúlega gæti ég verið að fara leika mér eitthvað á honum í sumar í sportinu,” segir Daníel og bætir við að Glampi sé mikill uppáhalds hestur hjá sér. Við endum þetta ræktunarviðtal hér og förum yfir í jóla spurningarnar.

Daníel óskar hestamönnum gleðilegra jóla. “Gleðilega hátíð og vonandi sé bara hugur og jákvæðni framundan. Hugsum jákvætt en ég er búin að vera hugsa alltof mikið neikvætt síðasta ár og nú verður breyting á því. Tæklum 2022 með jákvæðni að vopni.”

Hvernig háttar Daníel jólunum? “Við erum bara að hreyfa hross og höldum því áfram. Konan er búin með flestar jólagjafir ég blessunarlega slepp við það. Svo koma dætur mínar vonandi eitthvað til mín. Ég elda á jólunum, er ekki búin að ákveða hvað það verður en líklega annað hvort kalkúnn eða purusteik. Reyndar þegar ég horfi á sjálfan mig í spegli þá sýnist mér ég ekki þurfa að elda neitt á jólunum. Ætli ég reyni nú samt ekki að gleðja börnin með einhverjum góðum mat.

Einhverjar uppáhalds jólahefðir? “Nei engar þannig. Jólin eru ekki minn tími, ég þrífst mikið betur í rútínu.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link