Lágmörk á Íslandsmót ekki hækkuð í ár
Artemisia Bertus og Korgur frá Ingólfshvoli á Íslandsmóti á Hellu 2017
Íslandsmót fullorðinna og ungmenna 2020 verður haldið dagana 12. til 16. ágúst á Rangárbökkum. Skv. lögum og reglum LH ber keppnisnefnd að gefa út lágmörk fyrir Íslandsmót fullorðinna á hverju ári, 3 mánuðum fyrir Íslandsmót. Það er parið, hesturinn og knapinn sem ná þurfa eftirfarandi lágmörkum. Vakin er athygli á því að einkunnir parsins mega vera allt að tveggja ára gamlar. Einkunnir sem nást í T3, V2, F2 og T4 duga til þátttöku á Íslandsmóti. Lágmörkin gilda um fullorðinsflokk en engin lágmörk eru í ungmennaflokki.
Fyrr í vetur voru lágmörk hækkuð frá því sem áður hefur verið en í ljósi aðstæðna þykir keppnisnefnd rétt að lækka þau aftur í þau mörk sem gilt hafa undanfarin ár og eru þau sem hér segir:
Tölt T1 6,5
Fjórgangur V1 6,2
Fimmgangur F1 6,0
Tölt T2 6,2
Gæðingaskeið PP1 6,5
250 m skeið 26 sekúndur
150 m skeið 17 sekúndur
100 m skeið 9 sekúndur
Reykjavík, 15. maí 2020.
Með keppniskveðju,
Keppnisnefnd LH
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV