Föstudaginn 10. ágúst n.k. verða Landbúnaðarsýning og Handverkshátíð settar við Hrafnagil í Eyjafjarðarsveit. Handverkshátíðin er haldin í 20. sinn en Landbúnaðarsýningin er afmælissýning Búnaðarsambands Eyjafjarðar. Landbúnaðarsýningin er sett upp í tilefni af 80 ára afmæli Búnaðarsambands Eyjafjarðar. Sýningin verður umfangsmikil og fjölbreytt og mikið lagt upp úr að höfða þar til allra jafnt innan sem utan greinarinnar. Áhersla er lögð á kynningu og fræðslu.
Á sýningunni má sjá ýmsar hliðar landbúnaðar svo sem skógrækt, repjuolíuframleiðslu og rekstrarvörur. Vélaumboð kynna nýjungar í vélum, tækjum og tólum á stóru útisvæði þar sem hægt verður að skoða nýjustu gerðir landbúnaðartækja svo sem dráttarvélar og heyvinnutæki ásamt fullbúnum mjaltaþjón svo eitthvað sé nefnt. Búvélasafnarar sýna ýmsar eldri landbúnaðarvélar. Húsdýrasýning verður á svæðinu þar sem hægt verður að sjá flest íslensk húsdýr. Afurðastöðvar og samtökin Beint frá Býli kynna starfssemi sína í afurðatjaldi.
Félag ungra bænda á Norðurlandi stendur fyrir landskeppninni „Ungbóndi ársins“ á svæðinu og einnig kálfasýningu þar sem börn keppa í að teyma og skreyta smákálfa. Landssamband kúabænda heilgrillar naut á laugardeginum og á sunnudeginum heilgrillar Landssamband sauðfjárbænda lamb og báða dagana fá gestir „smakk“. Að auki fjárhundasýning, hestasýningar, hrútaþukl, rúningskeppni og –sýningar. Þekkingarsetur landbúnaðarins verður í tjaldi á sýningarsvæðinu og þar kynna landbúnaðarháskólarnir að Hólum og Hvanneyri starfsemi sína ásamt flestum búgreinasamtökum landsins og Félagi ungra bænda á Norðurlandi. Litli bændaskóla Bústólpa verða tvö þriggja tíma námskeið fyrir krakka og unglinga frá 10 ára aldri sem Bústólpi stendur fyrir. Námið endar á heimsókn í fjósið að Hrafnagili þar sem fylgst verður með mjöltum í einu stærsta og tæknivæddasta fjósi landsins. Skráning á
[email protected]
Grillveisla og skemmtidagskrá:
Á laugardagskvöldinu verður kvöldsamkoma í hátíðartjaldi sýninganna og hefst hún kl. 19:30 með veglegur grillhlaðborði Umf. Samherja og Hjálparsveitarinnar Dalbjargar. Verðið er 2.900.- á mann. Kl. 20:30 hefst kvöldskemmtun í hátíðartjaldinu. Veislustjórar verða Lára Sóley Jóhannsdóttir og Hjalti Jónsson. Frítt er á skemmtunina.
Hestamannafélagið Funi teymir undir börnum alla daga kl. 13 – 17 Veitingasala og lifandi tónlist alla daga
Meðfylgjandi er dagskráin:
Föstudagur 10. ágúst
Kl. 11:30
13:00 Setning
14:00 Rúningur
14:00 Fjárhundasýning
14:00 Litli Bændaskólinn Bústólpa
16:00 Hestasýning
16:00 Tískusýning
Laugardagur 11. ágúst
Kl. 13 Rúningur
14 Ungbóndi ársins
14 Litli bændaskóli Bústólpa
16 Tískusýning
Lk heilgrillar naut laugardagskvöld kll. 19:30 verður grillhlaðborð og kl. 20:30 kvöldvaka
Sunnudagur 12. ágúst
Kl. 13 Kálfateyming
14 Hrútaþukl
15 Rúningskeppni
16 Tískusýning
Ls heilgrillar lamb
Mánudagur 13. ágúst
Kl. 15 Hestasýning
16 Tískusýning
Dagskrá viðburða