Landsbankamót III
Landsbankamót III og það síðasta í vetrarmótaröð Sörla verður haldið um næstu helgi 11. og 12. apríl að Sörlastöðum. Þetta er mjög skemmtilegt þrígangsmót og 100m skeið, bæði fyrir þátttakendur og áhorfendur.
Skráning:
Opnað hefur verið fyrir skráningu á skraning.is . Líkur henni miðvikudaginn 9.apríl á miðnætti. Í þessu móti má skrá fleiri en einn hest. Mikilvægt er að keppendur vandi vel skráningu knapa og hest. Gefa þarf upp IS númer hests. Athugið að einungis er tekið á móti skráningum í gegnum skraning.is . Mótið er opið öllum skuldlausum Sörlafélögum við félagið.
Fyrirkomulag:
Sýna skal a.m.k. þrjár gangtegundir í fjórum ferðum. Knapi hefur sjálfur val um hvaða gangtegundir hann sýnir, en sýna ber þrjár af fimm viðurkenndum gangtegundum íslenska hestsins. Dómskali gæðingakeppni gildir. Gefin er ein einkunn fyrir tölt. Ef bæði er sýnt hægt og greitt tölt gildir hærri einkunn. Í 100m skeiði eru riðnir tveir sprettir og gildir besti tíminn úr öðrum hvorum sprettinum.
Keilur afmarka þar sem hestur er í dómi. Keppandi skal vera tilbúinn á brautarenda þegar knapi á undan er í braut. (sjá nánar reglur Landsbankamótaraðar á facebook síðu mótanefndar Sörla).
Drög að dagskrá:
Athugið að dagskrá getur riðlast v. forfallahesta. Knapar verða því að fylgjast vel með dagsskrá og fyrirmælum þular. Útvarpað verður frá mótinu á útvarpstíðninni 106,1 .
Föstudagur 11. apríl
kl. 18
Unglingar
Ungmenni
Úrslit unglingar
Úrslit ungmenni
Skeið
Laugardagur 12. apríl
kl 10
Börn
Fullorðnir (forkeppni blönduð úr öllum flokkum)
Hádegishlé
Pollar
Úrslit börn
Fullorðnir (forkeppni blönduð úr öllum flokkum)
Úrslit 3.flokkur
Úrslit 2. flokkur
Úrslit 50+
Úrslit 1. flokkur
Úrslit Opinn flokkur
Stigakeppni knapa:
Stigin reiknast eftir forkeppni.
Ef knapar eru jafnir að stigum eftir þriðja og síðasta mótið þá raðast keppendur þannig að sá sem verður hærri i úrslitum hlýtur hærra sætið i stigakeppni knapa.
Verðlaunaafhending fyrir stigahæstu knapana er strax að loknu móti í félagssal Sörla.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH